Hljómsveitin Une Misére var að senda frá sér glænýtt lag og myndband og ber það heitið „Damages.” Ekki nóg með það heldur var sveitin að skrifa undir útgáfusamning við þýska útgáfufyrirtækið Nuclear Blast. Útgáfufyrirtækið þykir eitt það framsæknasta í heimi svartmálms tónlistar en sveitir eins og Devilment, Simphony X og Soilwork svo fátt sé nefnt.
Margt er um að vera hjá Une Misére og eru meðlimir sveitarinnar staðráðnir í því að hafa eins og hátt og þeir geta árið 2019. Ný plata er í vinnslu og segja sögur að allt verður lagt í gripinn og hlakkar okkur mikið til að hlýða á komandi tóna! Nú er hinsvegar ekkert annað í stöðunni en að skella á play því nýútkomið lag og myndband er algert konfekt fyrir bæði augu og eyru.
Umræðan