Hljómsveitin KSF er að gera það virkilega gott um þessar mundir en fyrir stuttu hreppti sveitin fyrsta sæti í Remix keppni á vegum Groove Cruise. Verðlaunin voru sko ekki af verri endanum en kapparnir flugu til Miami Florida og silgdu þaðan á risastóru skemmtiferðaskipi en annað eins partý hafa drengirnir ekki orðið vitni af.
„Allir eru í einhverjum múnderingum sem að krydda þetta helvíti vel og sumir eru bara kviknaktir og það er bara ekkert vesen þetta er örugglega með því skemmtilegra sem að maður prófar á lífsleiðinni.“ – Friðrik Thorlacius
KSF bræður áttu að spila í eitt skipti en piltarnir gerðu allt brjálað frá fyrstu nótu og voru því fengnir til að spila á stærsta sviðinu og það kl 10:00 um morguninn. Á seinna gigginu spilaði sveitin aðeins frumsamið efni og fór það virkilega vel í mannskapinn.
„Við erum með stóra möguleika á að spila aftur og á stórum stöðum víðsvegar um bandaríkin eftir frammistöðu okkar á Groove Cruise. Við kynntumst mikið af flottu fólki mynduðum mikið af tengslum við nokkra stóra prómotera sem eru hrifnir af íslenska KSF Soundinu.“ – Friðrik Thorlacius
Það er greinilegt að framtíðin er björt hjá KSF bræðrum og gaman verður að fylgjast með þeim á næstunni. Drengirnir voru duglegir að vera með myndavélina á lofti og tóku þeir helling af ljósmyndum sem sjá má hér fyrir neðan og splæstu einnig í þetta stórskemmtilega „After Movie” myndband!
Umræðan