Sigurður Óskar Baldursson eða Siggi Litli eins og hann er kallaður var að senda frá sér bráðskemmtilegt lag og myndband sem ber heitið „FLY” Þetta mun vera hanns fyrsta lag á ensku og er útkoman eins og fyrr kemur fram bráðskemmtileg!
Fyrir skömmu trylltu Siggi Litli og AK Studio lýðinn á tónleikum sínum á skemmtistaðnum Café Amour á Akureyri en kapparnir munu svo koma fram á Græna Hattinum 18. Maí næstkomandi!
„Við stígum á svið á Græna Hattinum í fyrsta skiptið og það er mikil spenna í mannskapnum! Við fengum þetta gigg sirka þrem vikum eftir að hafa troðfyllt Café Amour. Við ætlum að gera þetta show ennþá stærra og við ætlum að taka helling af nýju efni!“ – siggi Litli
Tónleikarnir á Græna Hattinum byrja stundvíslega kl 21:00.
https://www.youtube.com/watch?v=iuz9zshSN58
Umræðan