Akureyrski tónlistarmaðurinn Stefán Elí var að senda frá sér tvö splunkuný og tilfinningarík lög sem saman bera heitið „Trip to the Stars.“ Stefán Elí samdi bæði lögin og textann, auk þess að sjá um allan hljóðfæraleik og upptökur sjálfur. Hljóðblöndun og mastering var í höndum Hauks Pálmasonar. Þetta er mjög tilraunakennt verk og segir Stefán að hann var mikið að prófa sig áfram með nýjar pælingar.
„Mér líður eins og í þessu lagi/lögum taki ég tónlistina á annað þrep en í því sem ég hef gefið út fram að þessu. Þótt ég segi sjálfur frá, finnst mér það hafa heppnast mjög vel.”
Trip to the stars er í raun upphaf stærra verkefnis sem mun vara fram á vor. Verkefnið heitir „Break My Heart So I Know” og mun það verkefni fela í sér útgáfu á a.m.k. einu nýju lagi í hverjum mánuði út veturinn. Þetta er einnig nafnið á playlista sem inniheldur töluvert af uppáhaldslögum Stefáns og í hverjum mánuði mun nýja efnið sem hann gefur út bætast á listann.
Stefán Elí hefur spilað mikið í sumar, og m.a. töluvert af rólegri tónleikum þar sem hann kom fram bara með gítarinn.
„Ég held að það hafi haft ákveðin áhrif á tónlistarsköpunina mína þar sem ég er farinn að nota gítarinn mikið meira og hugsa pínu um hvernig ég muni spila lögin live þegar ég er að semja.”
Trip to the Stars kom á allar helstu tónlistarveitur í dag, föstudaginn 5. Október. Hér að neðan er hægt að spila lagið á Spotify:
Umræðan