Íris Hrund Þórarinsdóttir frumsýnir myndband við titillag EP plötunnar Songs of Yggdrasill sem unnið var í samvinnu við listviðburðafélagið Huldufugl undir leikstjórn Owen Hindley en kvikmyndun var í höndum Hrafns Jónssonar. “Þetta er liður af fyrstu útgáfu undir nafninu Iris Thorarins,” útskýrir Íris, sem þegar er á bak við sólóverkefnið ÍRiiS og er í hljómsveitinni Grúska Babúska. “Verkefnið er ólíkt hinum að því leyti að hér gef ég út ýmis tónsmíðaverkefni sem ég hef fengist við að undanförnu, s.s. tónlist við tölvuleik, fyrir sýndarveruleikaverkefni sem og listainnsetningar”.
Myndbandið tilheyrir ‘Songs of Yggdrasill’ sem er þriggja laga safn af hljóðinnsetningum sem ég vann fyrir listviðburðafélagið Huldufugl. Um var að ræða opnun á völundarhúsi í fullri stærð sem var hluti af Menningarnótt Reykjavíkur 2016, og sótti innblástur til Norrænnar goðafræði. Verkið leiddi gesti í gegnum Paradís, heima Hels og loks til Yggdrasils og átti hver veröld sinn hljóðheim sem síðan rötuðu á plötuna. Í myndbandinu er leikið með ljósvarpa, form og áferðir með vísun í völundarhúsið sjálft,” tekur Íris fram.
“Sá spennandi atburður átti sér stað núna í september að sýndaveruleikaverkefnið ‘Kassinn’ (The Box VR) sem ég samdi hljóðheiminn fyrir vann til fyrstu verðlauna í flokknum “Innovation in Performance” á Stockholm Fringe festival 2018 ásamt því að vera tilnefnt til aðalverðlaunanna og er mikill heiður að vera hluti af því ferðalagi,” segir Íris. Í ´Kassanum´ er þátttakandi er í aðalhlutverki í dularfullri atburðarás sem tvinnar saman leiklist og tækni. “Það er vel hrist upp í skynjun viðkomandi með sýndarveruleikagleraugum og lifandi avatörum, en samhliða því læðir tónlistin fram tilfinningum; ýtir undir efa, undrun og forviðan ásamt því að tvinnast saman við framvindu söguþráðar. Frumkvöðlar verkefnisins eru þau Nanna Gunnars og Owen Hindley í Huldufugl, Ástþór Ágústsson leikari og Alexander Dan rithöfundur, ásamt mér sjálfri. Það verður í klárlega spennandi að sjá hvað gerist næst í uppsetningum ´Kassans´, en ég veit að nokkrar alþjóðlegar hátíðir eru inni í myndinni s.s. í Frakklandi, á Norðurlöndunum sem og í Bandaríkjunum,” segir Íris með tilhlökkun.
“Mig hefur lengi langað að stefna að tónsmíðum af þessu tagi, en það er þó bara nýlega að augun opnuðust fyrir tæknigeiranum. Það eru óteljandi tækifæri sem þar er að finna í ýmsum listformum en það sem kom mér af stað í þessa átt var þegar tölvuleikjahátíðin Isle of Games og Reykjavík Fringe Festival buðu mér að flytja lifandi spuna við spilun neðansjávartölvuleiksins ABZÛ. Um er að ræða stafrænan dans á milli mín og spilanda leiksins en bæði vorum við að spinna á sama augnabliki og skapa þannig stöðugt breytilegt og lifandi listform,”tekur Íris fram að lokum.
Umræðan