Munnhörpuleikarinn Þorleifur Gaukur er mættur á land eftir nám í Berklee College of Music. Í þetta skiptið tekur hann með sér Ethan Jodziewicz, einn fremsta Roots-music bassaleikara heims. Ethan er á milli túra með Grammy-tilnefndu Sierra Hull og hefur hann spilað með öllum frá Bela Fleck til David Grisman í tónleikahúsum eins og Carnegie Hall og the Grand ol Opry
Einstök blanda þeirra af Bluegrass og Djass er fersk og orkumikill spuni þeirra heldur áheyrendunum spenntum. Þeir ná að sýna að þessar tónlistarstefnur eru tengdari en margir halda. 16-24 Maí taka þeir hringinn í kringum landið og ætla að spila á Kex Hostel 21. Maí.
Nashville bassleikarinn Ethan Jodziewicz er einn fremsti Roots-bassaleikara heims. Ethan er á milli túra með Grammy-tilnefndu Sierra Hull og hefur hann spilað með öllum frá Bela Fleck til David Grisman. Hann þrífts í tónlist sem að blanda hefðum og framúrstefnu, tæknilegri færni með minimalisma og ástríðu. Sem rísandi stjarna í “new-acoustic” tónlistarsenunni kemur hann með ást sinni á spuna, kammer tónlist, djassi, Bandarískri folk tónlist, og fönk til kontrabassans. Takmarkalaus spilamennska hans vakið athygli um öll Bandaríkin og er hann spenntur að koma til Íslands í fyrsta sinn.
Munnhörpuleikarinn Þorleifur Gaukur hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi frá ungum aldri. Hann hefur spilað með KK, Kaleo, Victor Wooten, Bob Margolin, Peter Rowan, Tómas R. Einarsson, og mörgum fleirum. Haustið 2015 hóf hann nám við Berklee College of Music á fullum skólastyrk og fékk Clark Terry verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur í fyrra. Hann hefur verið aktívur í Bluegrass senuni í Bandaríkjunum og er draumurinn að kynna landann fyrir þeirri tónlist.
Umræðan