Næstu tónleikar Jazzklúbbsins Múlans fara fram í kvöld miðvikudaginn 16. mars á Björtuloftum í Hörpu. Á tónleikunum stígur bassaleikarinn Þorgrímur Jónsson sín fyrstu en langþráðu skref sem hljómsveitarstjóri nýrrar hljómsveitar sem er skipuð einvala liði íslensks tónlistarfólks. Kvintett sem samanstendur af Ara Braga Kárasyni á trompet, Ólafi Jónssyni á saxófón, Kjartani Valdemarssyni á píanó og rhodes, Þorvaldi Þór Þorvaldssyni á tromur auk Þorgríms srm leikur á raf- og kontrabassa. Þessi nýji kvintett sem leit dagsins ljós í upphafi árs heldur jómfrúar tónleika sína á dagsskrá Múlans. Tónlistin, sem er öll samin/skrifuð og útsett af Þorgrími, er af ýmsum toga. Hún er undir austrænum áhrifum Balkanskagans, vestrænni popp og rokk tónlist sem og evrópskum jazzi. Í fyrirrúmi eru lagrænar og vel ígrundaðar tónsmíðar og úttsetningar sem ættu að sína styrkleika kvintettsins í heild sinni.
Múlinn og Heimstónlistarklúbburinn hafa átt gott samstarf undanfarin ár og hafa saman staðið fyrir skemmtilegum og fjölbreyttum tónleikum í Hörpu. Að þessu sinni mun hljómsveitin Kúbik kvintett leika tónlist eftir meðlimi hljómsveitarinnar. Meðlimir sækja innblástur í tónlistararf Kúbu og munu þeir bjóðar upp á frískandi kokteil af salsa og angurværum bolero. Kúbik kvintett skipa Daníel Helgason á gítar, Helgi R. Heiðarsson á tenór saxófón, Jón Óskar Jónsson og Kristofer Rodriguez Svönuson á slagverk og Tómas R. Einarsson á kontrabassa.
Spennandi vordagskrá Jazzklúbbsins Múlans heldur síðan áfram með 16 tónleikum sem fram fara flest miðvikudagskvöld til 11. maí á Björtulöftum, Hörpu. Múlinn er á sínu 19. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og Tónlistarsjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og fara fram á Björtuloftum, 5. hæð Hörpu og er miðaverð kr. 2000, 1000 kr. fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu, harpa.is og tix.is
Umræðan