Kraumsverðlaunin voru afhent í tíunda sinn í gærdag á Bryggjunni, einum helsta tónleikastað höfuðborgarinnar. Sex hljómsveitir og listamenn hlutu Kraumsverðlaunin í ár en þau eru:
Cyber fyrir Horror
GlerAkur fyrir The Mountains Are Beautiful Now
Hafdís Bjarnadóttir fyrir Já
JFDR fyrir Brazil
SiGRÚN fyrir Smitari
Sólveig Matthildur fyrir Unexplained miseries & the acceptance of sorrow
Kraumsverðlaunin eru árleg plötuverðlaun tónlistarsjóðsins Kraums sem starfræktur er á vegum Auroru velgerðasjóðs. Alls hafa rúmlega fimmtíu hljómsveitir og listamenn hlotið Kraumsverðlaunin frá því þau voru fyrst veitt árið 2008. Hér má sjá lista yfir verðlaunahafa síðustu ára.
Greinilegt er að mikil gróska er í íslensku tónlistarlífi hvað útgáfurstarfsemi varðar, enda fór dómnefnd verðlaunanna yfir 374 útgáfur í vinnu sinni og vali á Kraumsverðlaunum 2017. Athygli verkur að meðal verðlaunahafanna í ár eru fjórir kvennkyns listamenn og ein hljómsveit, Cyber, sem aðeins er skipuð konum.
Fjölbreytni einkennir verðlaunaplöturnar í ár sem koma úr geirum hip hop og rapps, rokk, popp, raf- og tilraunatónlistar. Enda Kraumsverðlaunin ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar.
Kraumsverðlaununum er ætlað að kynna og styðja við útgáfustarfsemi íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.
Allar íslenskar plötur sem komu út á árinu eiga möguleika á að hljóta Kraumsverðlaunin. Bæði plötur sem eru gefnar út á geisladisk og vínyl, sem og útgáfur á Spotify og netinu. Útgáfustarfsemi á Spotify og netinu hefur færst mikið í vöxt síðustu ár og er stór hluti þeirra verka sem íslenskir listamenn og hljómsveitir hafa gefið út í ár eru aðeins fáanleg með þeim hætti.
Það er von aðstandenda Kraumsverðlaunanna að verðlaunin veki athygli á þeirri grósku og fjölbreytni sem einkennir íslenskt tónlistarlíf og plötuútgáfu.
Fyrri verðlaunahafar: Hjaltalín, Retro Stefson, Hildur Guðnadóttir, Ásgeir, Mammút, Anna Þorvaldsdóttir, Daníel Bjarnason, Cell 7, Sóley, Lay Low, Amiina, ADHD, Ojba Rasta, FM Belfast, Hugi Guðmundsson, Agent Fresco, Samaris, GKR, Misþyrming, Moses Hightower, Grísalappalísa, Helgi Hrafn Jónsson, Gyða Valtýsdóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Andreas Kristinsson, Alvia Islandia, Kælan mikla, Sin Fang, Ísafold kammersveit, Ólöf Arnalds og fjölmargir fleiri.
Kraumslistinn og Kraumsverðlaunin eru valin af fjórtán manna dómnefnd sem skipað er fólki sem hefur margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum, á vegum Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (IMX) og á öðrum vettvangi. Dómnefndina í ár skipa; Árni Matthíasson (formaður), Andrea Jónsdóttir, Anna Ásthildur Thorsteinsson, Alexandra Kjeld, Arnar Eggert Thoroddsen, Benedikt Reynisson, Berglind Sunna Stefánsdóttir, Heiða Eiríksdóttir, Helga Þórey Jónsdóttir, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Jóhann Ágúst Jóhannsson, Tanya Pollock, Trausti Júlíusson og Óli Dóri.
Aðstandandi Kraumslistans og Kraumsverðlaunanna er tónlistarsjóðurinn Kraumur sem starfræktur er á vegum Auroru velgerðasjóðs. Kraumur hefur það að meginhlutverki að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.
Umræðan