Það styttist í snjóbrettahátíðina Ak Extreme sem fram fer á Akureyri dagana 7.-10. Apríl næstkomandi. Gámastökkið er löngu orðið landsþekkt fyrirbæri og óhætt er að segja að mikil tilhlökkun er fyrir herlegheitunum.
Fjölmargir snjóbrettasnillingar leggja leið sýna norður en mikið er um að vera og má þar t.d. nefna tónleika í Sjallanum. Úlfur Úlfur, Agent Fresco, Emmsjé Gauti, GKR og Sturla Atlas er brot af því sem koma skal.
Miðaverð er 4.900 kr sem gildir fyrir alla þrjá dagana!
Umræðan