Nina Kraviz er að koma til landsins og heldur svokallað „Trip Party“ á Paloma þann 15. maí næstkomandi. Viðburðurinn er á vegum Trip, plötuútgáfu Ninu Kraviz og er haldinn í samstarfi við Arnvið Snorrason, sem allir Techno hausar þekkja sem Adda „Exos“, og Bjarka Rúnar, sem kallar sig Bjarki. Einnig mun breski plötusnúðurinn Blawan troða upp. Skemmtistaðurinn Paloma tekur aðeins um 300 gesti, sem Arnviður segir heldur óvanalegt fyrir Ninu, vanalega spili hún fyrir mörg þúsund manns!
Nina setti nýverið á laggirnar hljómplötuútgáfuna Trip en partíið á Paloma er það fyrsta á vegum útgáfunnar.
„Við Nina og Bjarki byrjum herlegheitin á Íslandi og förum svo til Detroit þar sem við troðum upp í eftirpartíi á Movement-hátíðinni hinn 24. maí næstkomandi,“ segir Arnviður og bætir við að um sé að ræða stærstu danshátíð Bandaríkjanna sem framleiðandinn Carl Craig standi fyrir.
(Hægt er að lesa nánar um hátíðina hér: http://movement.us/)
„Svo liggur leiðin til New York og spilum þar 28. maí. Eftir það spilum við í nokkrum partíum í Evrópu á vegum Trip,“ segir Arnviður og að þau muni einnig spila á „off venue“ viðburði í Barcelona 18. júní. Arnviður segir að planið sé að halda annað sambærilegt partí í Reykjavík í haust, með fleiri listamönnum og jafnvel á stærri skala en partíið hinn 15. Maí. Stefnan er að halda þetta tvisvar til þrisvar sinnum á ári.
Hvernig kom til að Nina og Addi Exos hófu samstarf?
„Í fyrra bað Nina mig að taka þátt í þessari útgáfu. Hún hafði samband því að ég gaf út plötu árið 1998, sem var ein fyrsta teknóplatan sem hún keypti. Upp úr því hóf mjög gott samstarf.“
Hann segir partíið hinn 15. maí í raun hafa verið skipulagt á kaffihúsi í miðbæ Reykjavíkur í febrúar síðastliðnum en þá var Nina stödd hér á landi vegna Sónar-hátíðarinnar. Hún hafi upphaflega ákveðið að vera hér í viku en svo framlengt dvölina um tvær vikur. Á því tímabili hafi þau unnið saman að lagi sem kemur út hjá plötuútgáfu hennar.
Samstarf Ninu og Bjarka Rúnars hafi hafist með því að Bjarki hafði samband við Ninu og lét hana hafa efni úr eigin smiðju, sem Nina hafi verið mjög ánægð með.
„Bjarki gerði lag sem kemur út hjá útgáfufyrirtæki Ninu, sem allir í teknóheiminum eru snarvitlausir í. Lagið, sem heitir „I wanna go bang“, verður eitt stærsta lag ársins en nokkrir stærstu teknóplötusnúðar í heimi hafa sent Bjarka skilaboð og beðið hann um lagið. Hann neitar þeim öllum því að Nina fær einkarétt á útgáfu þess.“
Addi segir að mikil leynd sé hvaða plötusnúðar þetta séu en um mjög stór nöfn sé að ræða. Addi segir Bjarka Rúnar eina björtustu von teknóheimsins í dag.
„Ben Klock, sem er einn besti plötusnúður í heimi og efstur á lista Resident Advisor yfir bestu teknóplötusnúðana, tók myndband af sér að spila lag Bjarka. Eftir það varð allt vægast sagt vitlaust.“
Ásamt Arnviði, Bjarka og Ninu stígur breski tónlistarmaðurinn Blawan á svið á Paloma. Arnviður segir hann njóta mikillar virðingar og fylgis í teknóheiminum.
„Blawan kom með ný og fersk áhrif inn í teknóið fyrir nokkrum árum. Hann byrjaði í dubstep- og broken beats-tónlist og samhæfði það við teknóið á mjög flottan hátt. Við ákváðum því að fá hann með okkur.“
Miðasala fer fram í verslununum Lucky Records, Mohawks og á heimasíðu Resident Advisor. Miðaverð 2.500 kr.
Umræðan