Á föstudaginn kemur 13.nóvember kl. 20:00 opnar sýningin „Promesse du bonheur„ í Harbinger sýningarýminu Freyjugötu 1. Listamennirnir eru Arnar Ásgeirsson og Heiðar Kári Rannversson. Sýningin stendur til 13. desember og er hún opin fimmtudaga – laugardaga frá 14 – 17 og einnig eftir samkomulagi.
Arnar Ásgeirsson er fæddur 1982 og býr og starfar ýmíst í Reykjavík, Amsterdam og Berlín. Hann vinnur með vídeó, teikningu, innsetningar og skúlptúra með gjörningaívafi. Fyrri sýningar eru m.a: Small Worlds, Kunstmuseum Lichtenstein, Vaduz, 2015, Art Bar, Art Dubai, Dubai UAE, 2015 , S7 – Suðurgata >> Árbær (ekki á leið), Nýlistasafnið, Reykjavík, 2014, A Farmer and his Dog, Lost & Found: Muziekgebouw aan ‘t IJ, Amsterdam & Norræna húsinu, Reykjavík, 2014, Icelandic Pavilion, White Squat, Zürich, 2013, Beneficial Genetics For The Right Time, RongWrong / Fons Welters, Amsterdam, 2012.
H.K. Rannversson fæddist 1982 og er listfræðingur og dagskrárstjóri Listasafns Reykjavíkur. Sýningaverkefni eru m.a: Geimþrá, Ásmundarsafn, 2015, S7 – Suðurgata >> Árbær (ekki á leið), Nýlistasafnið, 2014, Calculated Sustainability without Decisions, Grandagarður 16, Reykjavík, 2013, Finding a New Order, bb15, Linz, Goleb & Zolder Museum, Amsterdam, 2013, Take a breath …The best must come’, Upominki, Rotterdam, 2013.
Á sýningunni „Promesse du bonheur“ birtist dagdraumur Kúratorsins um stað sem er langt frá hefbundnum vettvangi myndlistarinnar. Í flóttanum frá hversdeginum verður hið venjubundna framandi – pottaplöntur verða að pálmatrjám og ryksugan gefur frá sér sefandi sjávarnið.
„Promesse du bonheur“ er áframhaldandi samtal Arnars Ásgeirssonar og Heiðars Kára Rannverssonar sem hófst með sýningunni „Disappointing Sculpture“ í Kunstschlager árið 2013.
Á sýningunni velta þeir fyrir sér hamingjuloforði listarinnar, með mynd- og textaverkum sem unnin eru undir áhrifum frá kokteilum og tælenskri matargerð.
Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði, Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar og unnin í samstarfi við veitingahúsið Ban Thai.
Umræðan