Hljómsveitin Swan Swan H sendir frá sér glænýtt lag sem nefnist „Flight WW“ og er lagið ansi poppskotið í anda áttunda áratugarins. Sveitin á sér ansi skemmtilega sögu sem hét áður Cygnus en breyttu um nafn því hitt var einfaldlega ekki að virka.
„Við höfðum samband við Arnar Eggert Thoroddsen , blaðamann og poppfræðing og hann dúndraði út nafninu Swan Swan H á innan við þrem sekúndum og minntist á skemmtilega tengingu þar við hljómsveitina REM sem á einmitt lag með sama nafni“ – Svanur Herbertsson
Swan Swan H sækir innblástur sinn í sveitir eins og The Verve, Bowie, og auðvitað U2, enda er Svanur söngvari sveitarinnar stundum kallaður „Swansea Bono.“
Þess má geta að sneriltrommusándið hans Charlie Watts úr Rolling Stones sem Herbert nokkur Guðmundsson stal úr stúdíói í london og notaði í ofursmellinn sinn „Can’t Walk Away“ hefur verið fengið „lánað” og notað í umrætt lag. Einhverra hluta vegna komst Svanur Herbertsson í multitrackinn og náði í nokkur sánd.
Meðlimir sveitarinnar eru Svanur Herbertsson syngur semur mixar/masterar pródúserar og spilar á hljómborð. Arnór Gunnarsson sér um bassa, gítara og allskonar kúl stuff. Sævar Logi er í gestahlutverki í laginu og spilar hann á gítar.
Umræðan