Eins og flestir vita var tónlistarhátíðin Iceland Airwaves um helgina sem leið og óhætt er að segja að stemningin hafi verið rafmögnuð! Um 300 listamenn komu fram á hátíðinni í ár og var miðbær Reykjavíkur iðandi af lífi!
Ljósmyndarinn Joe Shutter fór fyrir hönd Albumm.is og þræddi hann staðina, upplifði stemninguna og að sjálfsögðu smellti hann af framúrskarandi ljósmyndum!
Hér fyrir neðan má sjá ljósmyndirnar en þær eru af Amabadama, Sturla Atlas, Reykjavíkurdætrum og Fufanu svo fátt sé nefnt!
Umræðan