Það verður heldur betur stuð á skemmtistaðnum Paloma í kvöld en þar er það Sunnudagsklúbburinn sem ræður ríkjum að vanda. Dagskráin í kvöld er sko ekki af verri endanum en þar eru súperstjörnur í hverju horni.
KGB (Kristinn Gunnar Blöndal) mætir á svæðið en hann er þekktur fyrir að spila ansi fjölbreytta tónlist, en í kvöld mun kappinn spila frumsamda Techno tónlist í dýpri kantinum.
Einnig verður að sjálfsögðu sjálfur Formaðurinn á staðnum en honum til halds og traust verður enginn annar en Hlínun Jarðar.
Hlínun Jarðar ættu flestir að þekkja en hann hefur verið mjög áberandi að undanförnu.
Sjálfur Strúturinn verður verndari kvöldsins að vanda.
Það er grátt yfir Reykjavík í dag og því tilvalið að mæta á Paloma og sletta smá úr klaufunum á þessum yndislega sunnudegi.
Hægt er að lesa facebook eventið hér.
Umræðan