Á laugardaginn sem blés hljómsveitin Stuðmenn til heljarinnar tónleika í Þjóðleikhúsinu og fögnuðu um leið aldarafmæli fullveldis Íslands! Eins og alþjóð veit er Stuðmenn ein farsælasta hljómsveit landsins en hvert mannsbarn getur raulað með lögum sveitarinnar. Á tónleikunum var vægast sagt öllu til tjaldað og öll umgjörð til fyrirmyndar. Virkilega góð stemning myndaðist á tónleikunum og var salurinn sko algerlega með á nótunum! Stuðmenn héldu uppi þrusu stuði eins og þeim einum er lagið!
Mikið af góðu fólki komu að tónleikunum enda var þetta afar stórt í sniðum. Sunneva Ása Weisshappel var listrænn stjórnandi tónleikana og leikstýrði hún ásamt samstarfskonu sinni Anni Ólafsdóttur 24 myndbandsverkum sem var varpað var á stórt tjald á sviðinu. Verkin voru unnin og klippt úr nýju efni sem Sunneva og Anni tóku og leikstýrðu en einnig var notast við eldra efni frá 100 ára Íslandssögunni í tenginu við Stuðmenn og Stuðmannsefni. Þetta er í fyrsta skipti sem Stuðmenn henda í “Visual Event” og eru allir sammála um að vel tókst til!
Ljósmyndarinn Brynjar Snær mætti á svæðið og tók þessar frábæru ljósmyndir:
Umræðan