Snjóbrettakappinn Benedikt Friðbjörnsson hefur svo sannarlega verið að slá í gegn að undanförnu. Benni er kominn á samning hjá snjóbrettarisanum DC Snowboards og er hann búinn að vera megnið af vetrinum erlendis að keppa og taka upp.
Nú á dögunum kom út viðtal við kappann á erlendri stöð sem heitir DreamWorks Tv sem er eins og nafnið gefur til kynna í eigu DreamWorks. Þar fer Benni á kostum og svarar skemmtilegum spurningum og sýndar eru klippur frá honum á snjóbretti, að sjálfsögðu.
Skemmtilegt viðtal við einn besta og yngsta snjóbrettakappa landsins.
https://www.youtube.com/watch?v=03_TuChJMYQ
Umræðan