Útgáfufyrirtækið figureight tilkynnti nýverið um tvo nýja Bandaríska listamenn á mála hjá útgáfunni, þá Randall Dunn og Tōth. Nú eru komin út lög og myndbönd frá þeim báðum.
Randall Dunn er best þekktur sem upptökustjóri, en hann hefur unnið með listamönnum á borð við Sunn0))), Tim Hecker, Earth ofl. Í lok síðasta árs vann hann náið með Jóhanni Jóhannssyni og má heyra hluta þeirra samstarfs í hljóðheimi kvikmyndarinnar Mandy sem nú er sýnd í kvikmyndahúsum.
Figureight mun gefa út fyrstu sólóplötu Randall Dunn, Beloved þann 9. nóvember, en nú er hægt að hlusta á tóndæmi af plötunni. Lagið heitir „Something About That Night” og á því syngur Frank Fischer úr hljómsveitinni Algiers. Myndband fylgir laginu en það var tyrkneski leikstjórinn Mu Tunc sem stóð að því. Hægt er að forpanta plötuna sem niðurhal og á vinyl hér.
Alex Toth hefur komið víða við og unnið með listamönnum á borð við Kimbra og Cuddle Magic, en hann er sennilega þekktastur sem helmingur hljómsveitarinnar Rubblebucket sem hefur gert garðinn frægann í Bandaríkjunum undanfarin ár. Tōth er nýtt sólóverkefni hans og er plata væntanleg með nýju ári, mixuð af Andrew Sarlo (Big Thief, Nick Hakim).
Nú má heyra fyrsta tóndæmi plötunnar „Copilot” en lag og myndband var frumflutt á tónlistarvefnum Gorilla vs. Bear.
Hér fyrir neðan má sjá myndböndin tvö við lögin, Something About That Night og Copilot:
[bandcamp width=350 height=754 album=648576343 size=large bgcol=333333 linkcol=ffffff package=1388367246]
[bandcamp width=350 height=522 album=3758842188 size=large bgcol=333333 linkcol=ffffff]
Umræðan