Það hefur varla farið framhjá neinum að sannkölluð Hip Hop veisla verður í Iðnó þann 12. Desember næstkomandi þegar R.A. The Rugged Man, Mr. Green og AFRO koma fram ásamt rjómanum af Íslensku Hip Hopi.
Albumm.is mun kynna einn listamann eða hljómsveit á dag fram að viðburðinum og óhætt er að segja að dagskráin verður hin glæsilegasta.
Í dag kynnum við til leiks hljómsveitina Shades Of Reykjavík en þeirra fyrsta breiðskífa er væntanleg á næstu dögum. SOR hafa sent frá sér lög eins og „Lúpínublús og „Drusla“ En sveitin er með þeim vinsælustu á landinu um þessar mundir.
Miðasala fer fram á Miði.is og í Mohawks í kringlunni, miðaverð er aðeins 3.900 kr í forsölu.
Umræðan