Tónlistarhátíðin Secret Solstice er á næsta leiti en dagskrá hátíðarinnar í ár er einkar glæsileg! Tónlistarkonan Þórunn Antonía kemur fram á hátíðinni í ár og má búast við heljarinnar tónleikum en von er á nýju efni frá henni á næstunni!
Tónlistarmaðurinn Seint gerði sér lítið fyrir og skellti í ábreiðu af laginu „Electrify my heartbeat” með Þórunni og er útkoman vægast sagt tær snilld!
https://www.youtube.com/watch?v=8X_VIh3xuBA
Hér fyrir neðan má sjá og heyra upprunalegu útgáfuna af laginu.
Hægt er að nálgast miða á Secret Solstice á Miði.is
Umræðan