Skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice hafa nú tilkynnt fyrstu tónlistaratriðin sem koma fram í Laugardalnum 16.-18. júní næstkomandi. Hátíðin var fyrst haldin árið 2014 og hefur hún heldur betur fest sig sem ein af flottustu tónlistarhátíðum Íslands.
Nöfnin sem voru tilkynnt eru engin slor en þar er rokksveitin Foo Fighters fremstir á lista, Prodigy snúa aftur en þeir hafa nokkrum sinnum tryllt landann! Einnig mætir britpop goðið Richard Ashcroft úr hljómsveitinni The Verve en hver man ekki eftir slagaranum bittersweet symphony. Einnig má nefna Foreign Baggers, Klose One og Soul Clap. Íslendingarnir verða að sjálfsögðu á staðnum og má þar t.d. nefna Gkr, Tiny, Shades Of Reykjavík, Högni og Kiasmos svo fátt sé nefnt.
Í gær var slegið upp heljarinnar tónleikum í verslun 66°Norður á laugavegi en þar komu fram GKR, Soffía Björg og Captain Syrup, en einnig sást í snillinginn Ella Grill úr hljómsveitinni Shades Of Reykjavík.
Hér fyrir neðan má sjá þau tónlistaratriði sem hafa verið kynnt til leiks:
Foo Fighters, The Prodigy, Richard Ashcroft, Dubfire, Pharoahe Monch, Foreign Beggars, Dusky, Kerri, Chandler,Rhye, Högni, Kiasmos,Úlfur Úlfur, Soul Clap, John Acquaviva, Wolf + Lamb, Amabadama Emmsjé Gauti, Tania Vulcano, Droog, Yotto, Novelist, Soffía Björg, Artwork, Klose One, Tiny, BenSol, Shades of Reykjavík, GKR, Aron Can, Dave, Lord Pusswhip, Krysko & Greg Lord [UK], Hildur, KSF, Alvia Islandia, SXSXSX, Fox Train Safari, Kilo, Captain Syrup og Marteinn.
Hafsteinn Snær Þorsteinsson mætti á svæðið og tók hann þessar skemmtilegu ljósmyndir.
Umræðan