Að vera tónlistarhátíð á heimsmælikvarða og að vera umhverfisvænn viðburður helst oft ekki í hendur. Margir stærstu viðburðir heimsins eru þekktir fyrir að vera óhagkvæmir þegar það kemur að orkunotkun og jafnvel skaðlegir umhverfi sínu. Tónlistarhátíðin Secret Solstice leggur hinsvegar ríka áherslu á umhverfismál og hefur nú hlotið hinn alþjóðlega CarbonNeutral® gæðastimpil sem þýðir að allt CO2 sem verður til af völdum hátíðarinnar auk alls úrgangs verður jafnað út með hágæða kolefnisjafnara sem að tónlistarhátíðin hefur fjárfest í frá regnskógarverndunarstofnun í Madagaskar. Nú mun hátíðin leggja sitt að mörkum í að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið og stuðla að sjálfbærni hátíðarinnar. Skipuleggjendur leggja mikla áherslu á umhverfismál.
En hátíðin stoppar ekki með kolefnisjafnaranum heldur er ógrynni annarra verkefna sem hátíðin vinnur nú að til þess að gera hátíðina umhverfisvænni. Ísland hefur að geyma meðal virkustu eldstöðva í heimi og framleiðir gífurlegt magn af endurnýjanlegum jarðvarma. Secret Solstice ætlar sér að virkja þessa ótrúlegu náttúruauðlind og verður allt rafmagn á hátíðarsvæðinu keyrt á þessum græna aflgjafa.
Framleiðslustjóri Secret Solstice 2016, Giles Bristow hefur starfað fyrir sumar af stærstu tónlistarhátíðum heims í gegnum fyrirtækið Acute Audio Productions en hann telur Secret Solstice vera einstakt dæmi í notkun endurnýjanlegrar orku.
,,Öll orka sem notuð hefur verið til þess knýja Secret Solstice síðustu tvö ár hefur verið jarðhitarafmagn sem framleitt var á staðnum, þetta voru fyrstu útiviðburðir sem ég hef framleitt þar sem ekki einn dropi af díselolíu var notaður til þess að keyra hvorki hljóðkerfi, sviðslýsingu né neina sviðsframleiðslu.’’ – Bristow
Tónlistarhátíðin hefur einnig hafið svokallað ‘grænt’ samstarf við Toyota á Íslandi þar sem bílaframleiðandinn, sem er mjög framarlega á sviði umhverfismála, mun veita hátíðinni aðgang að sínum nýjustu ‘hybrid’ bílum í níu mánaða skeið til þess að minnka kolefnisfótspor hátíðarinnar enn frekar.
Þegar það kemur að endurvinnslu þá mun Secret Solstice skipuleggja allsherjar svæðisáætlun hvað varðar úrgang á hátíðinni, með það efst í huga að nýta öll þau efni sem að verða notuð í fremsta magni. Samstarfsaðili hátíðarinnar Icelandic Glacial munu einnig útvega hátíðinni hundruðir af sérstökum ruslafötum sem að brotna niður í náttúrunni.
,,Vitandi að við séum að láta gott af okkur leiða í að lágmarka áhrif Secret Solstice á jörðinni er stórt mál fyrir okkur. Við erum stolt af því að hafa Natural Capital Partners um borð til að hjálpa okkur að vega upp á móti losun gróðurhúsalofttegunda okkar í fyrsta skipti til að gera hátíðina á þessu ári eins umhverfisvæna og við mögulega getum.’’ – Framkvæmdarstjóri Secret Solstice, Friðrik Ólafsson
Secret Solstice hátíðin verður haldin í þriðja sinn dagana 16. – 19. júní í Reykjavík. Sveitir á borð við Radiohead, Deftones, Of Monsters And Men, Die Antwooed munu koma fram ásamt fjölda annara listamanna. Miðaverð á hátíðina er 24.900 og hægt að nálgast miða á www.tix.is. Aðstandendur benda einnig áhugasömum á að nú sé opið fyrir umsóknir varðandi sjálfboðastörf í tengslum við hátíðina inn á heimasíðunni secretsolstice.is. Þeir sem eru sérstaklega áhugasamir um hátíðina eru hvattir til þess að fylgja henni á Snapchat undir notendanafninu SecretSolstice þar sem birtar eru fyrstu fréttir af komandi hljómsveitum og nýjungum á hátíðinni áður en þær birtast á öðrum miðlum.
https://www.youtube.com/watch?v=BEpn5hmHuK4
Umræðan