Tónlistarmanninn Einar Vilberg ættu flestir að þekkja úr rokk hljómsveitinni NOISE, en Einar hefur verið starfandi tónlistarmaður frá 16 ára aldri. Einar stofnaði hljómsveitina NOISE árið 2001 með bróður sínum Stefáni Vilberg og hefur bandið gefið út fjórar breiðskífur og farið í fjölda tónleikaferða um heiminn.
Einar vinnur nú að sinni fyrstu sóló plötu sem er væntanleg í verslanir á næstunni. Einar Vilberg sér sjálfur um allan söng og hljóðfæraleik á plötunni ásamt því að taka sjálfur upp, hljóðblanda og mastera. Upptökur og eftirvinnsla fóru fram í stúdíóinu Hljóðverk fyrr á árinu.
Nóg hefur verið að gera hjá Einari undanfarið en fyrstu lögin af sóló plötu hans hafa verið að heyrast á útvarpsstöðvum landsins undanfarna mánuði. Á síðasta ári gaf Einar út plötuna Echoes með hljómsveit sinni NOISE við góðar undirtektir. Á Echoes sem er fjórða plata NOISE var hljóðheimurinn órafmagnaður og skreyttur með strengjum og píanói. Þess má geta að strengjasveit Mark Lanegans spilaði strengina á Echoes plötunni eftir útsetningum Einars.Einar hóf í kjölfarið vinnu á sinni fyrstu sóló plötu.
Í fyrra fékk Einar skilaboð frá amerísku hljómsveitinni Stone Temple Pilots varðandi hugsanlega söngvarastöðu í hljómsveitinni. Einar var valinn úr hópi 40.000 umsækjenda, fór í september til Los Angeles og söng með STP í hljóðveri Foo Fighters. Einar komst í þriggja manna úrslit sem ber að teljast frábær árangur.
Eftir heimkomuna frá L.A einbeitti Einar sér að því að pródúsera og taka upp aðra tónlistarmenn í hljóðveri sínu Hljóðverki ásamt því að vinna áfram að sóló plötu sinni sem nú fer að líta dagsins ljós.
Nýverið gaf Einar Vilberg út glænýtt lag af væntanlegri sóló plötu. Lagið heitir „YOU WEREN’T THERE“ en Einar samdi lagið þegar honum bárust þær fregnir að Chris Cornell hefði látist.
„Cornell og félagar í Soundgarden hafa í gegnum tíðina haft gríðarlega mikil áhrif á mig sem tónlistarmann og lagahöfund. Þessi tónlist hefur fylgt manni hálfa ævina og það var nánast eins og maður hefði misst góðan vin þegar að Chris Cornell dó. Mjög speisað en svona hefur tónlistin hans augljóslega haft mikil áhrif á mig. Sóló platan mín var tilbúin en svo allt í einu skaut þetta lag upp kollinum og ég varð að bæta því við” – Segir Einar um gerð lagsins
Hægt er að hlusta á nýja lagið frá Einari Vilberg á YouTube en lagið er einnig væntanlegt á allar helstu streymisveitur.
Umræðan