Sannkölluð rokkveisla fór fram í Vodafonehöllinni síðastliðið laugardagskvöld þegar Rokkjötnar fóru fram í þriðja sinn. Stappað var út úr dyrum, stemmingin var vægast sagt geggjuð og greinilegt að rokkið lifir mjög góðu lífi á klakanum kalda.
Dagskráin var glæsileg í ár en í fyrsta sinn steig erlent band á svið og ekkert slor þar á ferð!
Mastodon er ein af helstu rokksveitum heims en þeir gerðu allt brjálað þetta laugardagskvöld ásamt landsliði Íslenskra rokkara.
Dimma, Sólstafir, The Vintage Caravan, Kontinuum, Muck, Bootlegs og Meistarar Dauðans stigu á svið og rokkuðu mannskapinn í öreindir enda ekki annað hægt þegar rætt er um slíkar gæðasveitir!
Gleðin skein úr hverju andliti og hljómsveitirnar keyrðu þetta í gegn eins og hetjur! Virkilega vel heppnað Rokkjötna kvöld!
Áfram rokk og ról!
Hafsteinn Viðar Ársælsson mætti á svæðið og tók hann þessar frábæru ljósmyndir fyrir Albumm.is
Umræðan