Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík verður sett þann 24. september næstkomandi, 40 myndir verða á dagskrá þá 11 daga sem hátíðin stendur. Myndirnar sem nú eru kynntar eru annars vegar heimildarmyndir og myndir í keppnisflokkunum Open Seas þar sem sérstaklega eru valdar myndir sem vakið hafa athygli á kvikmyndahátíðum undanfarin misseri og flokknum A Different Tomorrow sem inniheldur myndir sem taldar eru geta bætt heiminn í kringum okkur. Það kennir ýmissa grasa í listanum að neðan, allt frá heimildarmyndum um Hollywoodstjörnur sem fallnar eru frá, um stjórnarskrárbreytingar í Zimbabwe og þá mynd um líf og störf sælkera og matargagnrýnanda.
Hægt er að kynna sér myndirnar nánar hér að neðan og frekari upplýsingar og miðasölu er að finna á vef riff.is.
Eftirfarandi myndir hafa vakið mikla athygli á undanförnum misserum:
Cartel Land. Heimildarmynd eftir Matthew Heineman frá Bandaríkjunum sem segir sögu tveggja sjálfskipaðra löggæslumanna sem hafa ákveðið að leggja allt í sölurnar til að kveða niður vargöldina sem geisað hefur í Mexíkó vegna stríða glæpagengja þar í landi. Myndin var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni og naut þar mikilla velgengni, hlaut meðal annars verðlaun fyrir bestu leikstjórn og kvikmyndatöku.
https://www.youtube.com/watch?v=gkYBbBK0qoM
Ingrid Bergman in her own Words. Heimildarmynd eftir hinn sænska Stig Björkman. Í myndinni eru birt áður óbirt dagbókarbrot, bréf og myndefni Ingrid Bergman sem varpa nýju ljósi á heillandi sögu venjulegrar sænskrar stúlku sem á stuttum tíma varð stærsta stjarnan í Hollywood. Myndin hlaut sérstök dómnefndarverðlaun á Cannes-kvikmyndahátíðinni í maí.
Heimildarmyndin Pervert Park. Hjónin Frida og Lasse Barkfors lögðu í það krefjandi ferðalag að heimsækja hjólhýsagarðinn Florida Justice Transition þar sem safnast hafa saman dæmdir kynferðisbrotamenn sem reyna á nýjan leik að aðlagast samfélaginu. Myndin segir sögu þeirra á hreinskilin og umbúðalausan hátt.
Drone eftir Terje Hissen Schei. Heimildarmynd sem fjallar um notkun CIA og bandaríkjahers á flygildum í hernaði. Myndin segir bæði sögu íbúa í Pakistan sem búa við sífellda ógn vopnanna og þá innri baráttu þeirra sem stýra tólunum. Schei hefur á undanförnum árum unnið til fjölmargra friðar- og mannúðarverðlauna á kvikmyndahátíðum víða heim.
Tangerine eftir leikstjórann Sean Baker. Þessi frumlega og fjöruga mynd fjallar trans-vændiskonuna Sin-Dee sem hefur leit um alla Los Angeles að dólgnum Chester sem hélt framhjá henni á meðan mánaðarlangri fangelsisdvöl hennar stóð. Myndin var öll tekin upp á þremur iPhone 5 snjallsímum og vann til verðlauna á Karlovy Vary hátíðinni.
Journey to the Shore eftir Kiyoshi Kurosawa. Þremur árum eftir að Yusuke drukknaði undan norðuströnd Japans, snýr hann aftur heim til ekkju sinnar Mizuki og býður henni í ferðalag að ströndinni þar sem hann kvaddi heiminn. Ljúfsár drauga-ástarsaga sem sýnir að náin tengsl geta náð út fyrir dauðann. Myndin hlaut leikstjórnarverðlaun í Un Certain Regard flokknum á Cannes.
https://www.youtube.com/watch?v=OuN63rT3sRE
HEIMILDARMYNDIR:
1989
Anders Østergaard, Erzsébet Rácz DEN/GER/HUN/NOR 2014 97 mins
Hér er magnað andrúmsloftið og atburðirnir sem leiddu til falls Járntjaldsins árið 1989 endurskapaðir. Áhorfandinn fær aðgang að leynilegum fundum gegnum vitnisburði lykilþátttakenda, ýmis opinber gögn og endurleikna atburði. Leikstjórinn Anders Østergaard hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna árið 2008 fyrir ‘Burma VJ.’ |
A Flickering Truth
Pietra Brettkelly NZL/AFG 91 min 2015
Þrír draumóramenn dvelja í rykskýinu sem aldarlangt stríðið í Afganistan hefur skilið eftir sig. Þeir reyna nú að verja og endurheimta 8000 klukkustundir af efni sem geymt er á viðkvæmri filmu sem þeir hafa gætt með lífi sínu undir ógnarstjórn Talíbana. Hvað mun filman leiða í ljós um horfna tíma? |
Around the World in 50 Concerts
Heddy Honigmann NED 2014 95 min.
|
Cartel Land
Matthew Heineman MEX/USA 2015 98 min
Vargöld geisar í Mexíkó þar sem morðóðar glæpaklíkur ráða víða ríkjum. Í þessari vestrakenndu heimildarmynd er fylgst með tveimur sjálfskipuðum laganna vörðum sem hafa helgað líf sitt baráttunni við glæpasamtökin. Cartel Land hlaut verðlaun fyrir bestu leikstjórn og bestu kvikmyndatöku á Sundance kvikmyndahátíðinni. |
Democrats
Camilla Nielsson DEN 2015 100 mins
Camilla Nielsson fékk einstakan aðgang að viðræðum tveggja stjórnmálamanna úr andstæðum fylkingum sem unnu að því að semja nýja stjórnarskrá fyrir Zimbabwe. Annað hvort markar hún upphafið að endalokum spilltrar harðstjórnar Roberts Mugabe og innleiðingu lýðræðis – eða hún tryggir áframhaldandi kúgun og einræði. Vann til verðlauna á CPH:DOX og víðar. |
Foodies
Thomas Jackson, Charlotte Landelius, Henrik Stockare SWE 2014 95 mins
Áhugi á hágæða eldamennsku fer sífellt vaxandi. Í ‘Sælkerum’ stígum við inn í heim áhrifamestu sælkera í heimi; öflugan hóp matargagnrýnanda sem hafa einstaka ástríðu fyrir faginu og eldamennsku og ferðast stöðugt á milli bestu veitingastaða í heimi. Þar hafa þau aðgang sem meðaljóninn getur ekki látið sig dreyma um. |
Ingrid Bergman in her own Words
Stig Björkman SWE 2015 114 min
Í Ég heiti Ingrid er saga leikkonunnar Ingrid Bergman rakin í viðtölum, áður óbirtu myndefni, persónulegum bréfum og dagbókarfærslum. Afhjúpandi og heillandi heimildarmynd um viðburðarríkt líf ungrar sænskrar stúlku sem varð stærsta stjarnan í Hollywood. Hlaut sérstaka viðurkenningu dómnefndar á kvikmyndahátíðinni í Cannes. |
Jia Zhang-ke: A Guy from Fenyang
Walter Salles BRA/CHI 2014 105 min Einum merkasta leikstjóra samtímans, Jia Zhang-ke, er fylgt eftir meðan hann ferðast aftur til heimabæjar síns í Kína, heimsækir tökustaði og hittir samferðafólk sitt af ferlinum. Leikstjóri myndarinnar, Óskarsverðlaunahafinn Walter Salles, töfrar fram innilegt kvikmyndalegt samtal þar sem sköpunarferli kvikmyndahöfundarins er kannað á ljóðrænan hátt. |
Leaving Africa
Iiris Härmä FIN/SWE 2015 84 min
Finnska leikstýran Iiris Härmä segir hér átakanlega og hjartnæma sögu um vináttu og valdeflingu kvenna. Hin finnska Riita og hin úganska Catherine búa saman í Úganda og fræða fólk í nágrannasamfélögum um kynheilsu og jafnrétti. Eftir 25 ára starf hóta yfirvöld að afturkalla leyfi þeirra, hætta fjármögnun verkefnisins og gera Riittu brottræka. |
Listen to me Marlon
Stevan Riley GBR 2015 95 min.
Ef horft er yfir alla þekktustu leikara Hollywood á 20. öld þá er óhætt að fullyrða að fáar stjörnur hafi skinið jafn skært og Marlon Brando. Fáir voru jafn umdeildir en samtímis dáðir. Þessi nánast sjálfsævisögulega mynd er sett saman úr gríðarlegu safni hljóðupptakna sem Brando tók sjálfur upp og notar þannig hans eigin rödd til að afhjúpa manninn á bak við goðsögnina. |
Pervert Park
Frida & Lasse Barkfors DEN/SWE 2014 75 min
Í Pervert Park fylgja Frida og Lasse Barkfors hópi kynferðisafbrotamanna eftir í hjólhýsagarðinum Florida Justice Transitions þar sem þeir reyna að aðlagast samfélaginu á ný. Í myndinni tekst hjónunum að leysa það afar erfiða verkefni að draga upp mynd af afbrotamönnunum og brotum þeirra á eins hreinskilinn og umbúðalausan hátt og þeim er unnt. |
Rolling Papers
Mitch Dickman USA/URU 2015 79 mins |
Sweet Micky for President
Ben Patterson USA 2015 89 min |
The Amina Profile
Sophie Deraspe CAN 2015 84 min
Sandra í Montreal kynnist Aminu í Sýrlandi á netinu. Arabíska vorið rennur upp og fljótlega dregst Amina, sem heldur úti bloggi, inn í hringiðuna og henni er rænt. Óttaslegin ástkona hennar leitar hennar heimsenda á milli en uppgötvar að það fara ekki allir eftir leikreglum á veraldarvefnum sem er einnig vefur leyndardóma og blekkingar.
|
The Arms Drop
Andreas Koefoed DEN/SWE/GBR/IND 2014 94 min.
Árið 1995 féllu nokkur þúsund vélbyssur og skotfæri af himnum ofan í Vestur-Bengal héraði á Indlandi. Daninn Niels Holck og Bretinn Peter Bleach stóðu að baki athæfinu. Annar þeirra var handsamaður en hinn slapp. Fátt annað var vitað um þennan verknað lengi vel, en í þessari grípandi heimildarmynd er reynt að greiða úr þessu gríðarflókna máli.
|
The Circus Dynasty
Anders Riis-Hansen DEN 2014 95 min.
Þegar tvær stærstu sirkusfjölskyldur í Evrópu eignast erfingja af sitt hvoru kyni á sama árinu kemur fátt annað en ævintýralegt samband þeirra til greina. Hér skyggnumst við bak við litrík tjöld á einstakt samband þeirra, samband sem reynir á þegar annað þeirra fær tilboð sem erfitt er að hafna…
|
The Closer We Get
Karen Guthrie GBR/ETH 2015 87 mins
Áhrifamikil og persónuleg heimildarmynd þar sem Karen Guthrie fjallar um eigin fjölskyldu eftir að móðir hennar fær alvarlegt heilablóðfall. Með myndavélina að vopni leitar hún að sannleikanum á bak við lygina sem faðir hennar hélt að börnunum. Var valin besta alþjóðlega heimildarmyndin á Hot Docs hátíðinni í Toronto. |
The Living Fire
Ostap Kostyuk UKR 2014 77 min.
Í hrjóstrugum Karpaþíu-fjallgarðinum í Úkraínu halda fjárhirðar enn í aldagamla lifnaðarhætti forfeðra sinna. Í þessari áhrifaríku heimild um hverfandi samfélag eru þrír hirðar teknir fyrir, hver af sinni kynslóð: Ivan (82), Vasyl (39) og Ivanko (10). Þeir eru táknmyndir um fortíð, nútíð og hugsanlega framtíð þessa fámenna hóps. |
The Other Side
Roberto Minervini FRA/ITA 92 min 2015 Á ósýnilegu landsvæði á útjaðri siðmenningarinnar, á mörkum stjórnleysis og lögleysu, býr fólk í mýrinni. Þessu jaðarfólki er hér lýst á einstaklega ljóðrænan hátt þótt það sé erfitt að finna til samkenndar með fólki sem talar niðrandi um minnihlutahópa, tekur heróín, skýtur rifflum og virðir fátt annað en sitt eigið ímyndaða frelsi. |
The Queen of Silence
Agnieszka Zwiefka GER/POL 2014 83 min |
The Wanted 18
Amer Shomali, Paul Cowan PAL/CAN/FRA 75 min 2014 |
War of Lies
Matthias Bittner GER 2014 89 min
Árið 2003 lýstu Bandaríkin stríði á hendur Írak til að stöðva framleiðslu þeirra á gereyðingarvopnum. Ákvörðunin um hernaðaríhlutun byggði á vitnisburði eins manns, írakska uppljóstrarans Rafid Ahmed Alwan. Vitnisburður Rafids reyndist uppspuni og í þessari mögnuðu heimildarmynd er glímt við spurninguna: Hvernig geta fölsk ummæli eins manns hrundið af stað stríði? |
Warriors from the North
Nasib Farah, Søren Steen Jespersen DAN/SOM 2015 59 min. |
Who took Johnny?
David Beilinson, Michael Galinski, Suki Hawley USA 2014 77 min |
A DIFFERENT TOMORROW:
Drone
Tonje Hessen Schei NOR/PAK/USA 2014 78 mins
CIA notar flygildi, eða dróna, sem vopn í leynilegu stríði. Við fylgjumst bæði með íbúum Pakistan sem búa við stöðuga ógn flygildanna og innri baráttu þeirra sem fljúga þessum drápstólum. Á meðan tæknin þróast á ógnarhraða dregst alþjóðlegt lagaumhverfi aftur úr meðan flygildin breyta stríðsrekstri til frambúðar. Handhafi fjölda friðar- og mannréttindaverðlauna á kvikmyndahátíðum liðins árs. |
Haida Gwaii: On the Edge of the World
Charles Wilkinson CAN 2015 74 min. Á eyjunni Haida Gwaii undan vesturströnd Kanada hefur Haida þjóðflokkurinn lifað í þúsundir ára. Eftir að sjúkdómar vestrænna landnema útrýmdu þjóðinni nánast á 19. öld, hefur hún þurft að berjast óslitið gegn ofurliði erlendra yfirráða til að fá að nýta eigin auðlindir á sjálfbæran máta. Sú barátta virðist nú loks farin að bera árangur.
|
How to Change the World
Jerry Rothwell CAN/GBR 2015 110 min.
Árið 1971 hélt fámennur vinahópur frá Vancouver í för til að mótmæla tilraunum Nixons með kjarnorkuvopn í Alaska. Aðgerðin varð svo kveikjan að stofnun Grænfriðunga, þeirrar byltingarkenndu náttúruverndarhreyfingar. Hér er sagt frá sigrum þeirra en líka ósættinu sem varð meðal félagsmanna þegar á leið. Myndin hlaut verðlaun fyrir klippingu á Sundance. |
Last of the Elephant Men
Arnaud Bouquet, Daniel Ferguson FRA/CAN/CAM 2015 90 min.
Í samfélagi Bunong þjóðflokksins í Austur-Kambódíu gegna fílar mikilvægu hlutverki, ekki aðeins vegna þess að þeir eru mikilvæg burðardýr heldur líka af trúarlegum ástæðum. En nú á dögum er vegið að velferð manna og fíla, bæði með eyðingu skóganna sem hýsa villta fílana áður en þeir eru tamdir og með reglugerðum sem banna tamningu fleiri fíla. |
The Messenger
Su Rynard CAN 2015 84 min.
Hvernig væri heimur án fuglasöngs? Fyrir leikstjórann Su Rynard er þetta ekki aðeins fræðileg spurning því víða um heim eru söngfuglategundir að hverfa af himninum. Hér fáum við að skyggnast inn í heim fuglanna frá þeirra eigin sjónarhóli og kynnumst fólkinu sem vonast til að hindra útrýmingu þeirra.
|
The Shore Break
Ryley Grunenwald RSA 2014 90 min. |
OPEN SEAS:
Chasuke’s Journey
Hiroyuki Tanaka JAP / FRA 2014 106 mins
Ástarfantasía sem flakkar milli himins og jarðar. Chasuke hellir upp á te á himnum en er hrifinn af mennskri konu sem heitir Yuri. Hann þekkir til hennar gegnum höfundinn sem skrifar handrit lífs hennar á himnum. Af sömu ástæðu veit hann að hún er dæmd til að deyja í bílslysi. Til að bjarga lífi hennar hættir Chasuke sér til Jarðar. Tilnefnd til gullbjörnsins í Berlín. |
Chevalier
Athina Rachel Tsangari GRC 2015 99 min
Ástralskt stóriðjufyrirtæki hyggst verka títaníum meðfram suður-afrísku strandlengjunni en skiptar skoðanir eru um þessi áform meðal íbúanna. „Framfarasinninn“ Madiba er sannfærður um að iðnaðurinn muni efla efnahaginn á svæðinu meðan frænka hans Nohnle leiðir hóp hinna sem óttast áhrifin á umhverfi og menningu svæðisins.
|
Eisenstein in Guanajato
Peter Greenaway NED/BEL/FIN/MEX/FRA 2015 105 mins
Eftir frumsýningu meistaraverksins Beitiskipið Pótemkín var Eisenstein dáður um heim allan. Bandaríkjamenn tóku honum þó dauflega og árið 1931 ferðaðist hann til Mexíkó til að undirbúa næstu kvikmynd sína. Munúðarfull reynsla hans þar virðist hafa haft mikil áhrif á líf hans og feril. Tilnefnd til gullbjörnsins á kvikmyndahátíðinni í Berlín. |
Embrace of the Serpent
Ciro Guerra COL/VEN/ARG 2015 125 mins |
Journey to the Shore
Kiyoshi Kurosawa JAP 2015 127 min.
Þremur árum eftir að Yusuke drukknaði undan norðuströnd Japans, snýr hann aftur heim til ekkju sinnar Mizuki og býður henni í ferðalag að ströndinni þar sem hann kvaddi heiminn. Ljúfsár drauga-ástarsaga sem sýnir að náin tengsl geta náð út fyrir dauðann. Myndin hlaut leikstjórnarverðlaun í Un Certain Regard flokknum á Cannes. |
Last Days in the Desert
Rodrigo García USA 2015 98 mins |
Mountains May Depart
Zhangke Jia CHI 2015 131 min.
Zhao Tao verður að gera upp á milli tveggja vonbiðla, fátæka námuverkamannsins Liangzi og auðjöfursins Zhang. Við kynnumst ástum og örlögum þremenninganna yfir þrjú tímabil, á árunum 1999, 2014 og 2025. Um leið fáum við einstaka sýn á gjána milli nýríkra fjármagnseigenda og vinnandi fólks í Kína. Tilnefnd til Gullpálmans í Cannes. |
Tangerine
Sean Baker USA 2015 88 min.
Eftir mánaðarlanga fangelsisdvöl ætlar trans-vændiskonan Sin-Dee Rella að setja Los Angeles á annan endann í leit sinni að dólgnum Chester sem hélt fram hjá henni meðan hún var bak við lás og slá. Þessi fjöruga og frumlega mynd var öll tekin upp með þremur iPhone 5 snjallsímum og vann til verðlauna á Karlovy Vary hátíðinni. |
The Measure of a Man
Stéphane Brizé FRA 2015 93 min. |
Those Who Fall Have Wings
Peter Brunner AUS 2015 93 min.
Kati dvelur hjá hjartveikri ömmu sinni sem reynir að hjálpa barnabarninu að rífa sig úr andlegri lægð með því að miðla eigin reynslu af slíkri þjáningu. Náið innlit í hugarheim þunglyndrar stelpu þar sem veruleiki og draumkenndar sýnir blandast og skapa margslungna mynd af meininu. Vann til dómnefndarverðlauna á Karlovy Vary hátíðinni.
|
ALLAR MYNDIR Í STAFRÓFSRÖÐ:
1989
A Flickering Truth
Around the World in 50 Concerts
Cartel Land
Chasukes Journey
Chevalier
Democrats
Drones
Eisenstein in Guajanato
Embrace of the Serpent
Foodies
Haida Gwaii: On the Edge of the World
How to Change the World
Jäg är Ingrid
Jia Zhang-ke: A Guy from Fenyang
Journey to the Shore
Last Days in the Desert
Last of the Elephant Man
Leaving Africa
Listen to Me Marlon
Mountains May Depart
Pervert Park
Rolling Papers
Sweet Mickey
Tangerine
The Amina Profile
The Arms Drop
The Circus Dynasty.
The Closer We Get.
The Living Fire.
The Measures of a Man
The Messenger
The Other Side
The Queen of Silence
The Shore Break
The Wanted 18
Those Who Fall have Wings
War of Lies
Warriors from the North
Who Took Johnny
Umræðan