Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík verður sett í 12. sinn þann 24. september næstkomandi og mun standa til sunnudagsins 4. október. Sýningarstaðir að þessu sinni eru þeir sömu og í fyrra, Bíó Paradís, Háskólabíó, Norræna húsið og Tjarnarbíó. Lokamyndin Ófærð verður þá sýnd í Egilshöll. Opnunarmyndin Tale of Tales verður sýnd við sérstaka athöfn í Gamla bíó þann 24. september. Þá verður víðtæk dagskrá í Kópavogi, m.a. í Gerðasafni, Salnum og Bókasafni Kópavogs.
Hátíðin er unnin í samvinnu og með stuðningi Menntamálaráðuneytisins, Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæjar og Media sjóðs Evrópusambandsins (Creative Europe). Þá nýtur hátíðin stuðnings fjölmargra fyrirtækja og sendiráða. Bakhjarlar RIFF í ár eru Ríkisútvarpið, Reykjavík Excursions, DHL og Norræna húsið.
Umfang hátíðarinnar hefur margfaldast frá upphafsárinu 2004. Undanfarin ár hafa hátt í 30.000 gestir sótt hátíðina árlega og starfa um 30 starfsmenn að henni þegar mest lætur en um 4 starfsmenn starfa að hátíðinni allan ársins hring. Þá taka um 100 sjálfboðaliðar þátt á meðan hátíð stendur. Markmið RIFF er eins og áður það sama. Að kynna fyrir Íslendingum nýjar og spennandi kvikmyndir þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi Að vekja umræðu og umtal um samfélagsleg málefni með heimi kvikmyndarinnar og að tengja saman íslenskt og erlent kvikmyndagerðarfólk í samtal og samvinnu. . RIFF er komin á hið alþjóðlega kvikmyndahátíðarkort, hana sækir bransafólk og túristar viðs vegar að úr heiminum.
Allt frá drónahernaði, stjórnarskrárbreytingum í Zimbabwe, falli Berlínarmúrsins og þroskasögu unglings á Vestfjörðum. Á dagskrá hátíðarinnar eru hátt í 100 myndir í fullri lengd auk fjölmargra stuttmynda og einnar mínútu mynda. 12 myndir keppa í aðalverðlaunaflokki hátíðarinnar Vitranir – sem inniheldur fyrsta og annað verk leikstjóra. Á hátíðinni verða myndir eftir reynda þekkta leikstjóra, t.d. Peter Greenaway, Susan Bier, Alexander Sokurov og Bille August o.fl. 14 myndir í fullri lengd eru í flokknum Fyrir opnu hafi en þar er um að ræða myndir sem vakið hafa sérstaka athygli á kvikmyndahátíðum undanfarin misseri. Í flokknum Önnur framtíð keppa 10 heimildarmyndir sem taldar eru sérstaklega geta haft áhrif til góðs. Í heimildarmyndaflokki hátíðarinnar eru þá 26 myndir. Rúmlega 70% myndanna koma frá Evrópu en allt í allt eru myndir frá um 60 löndum á dagskrá hátíðarinnar.
Sérstakur danskur fókus er á hátíðinni í ár og verða af því tilefni sýndar 8 nýjar danskar kvikmyndar auk sérstakrar frumsýningar á þáttunum Broen.
Líkt og undanfarin ár verður íslenskur stuttmyndaflokkur þar sem besta íslenska stuttmyndin verður verðlaunuð úr hópi 16 mynda sem valdar voru til sýninga. Þá verður vönduð barnadagskrá á hátíðinni fyrir börn og unglinga á öllum aldri. Sérstök barnakvikmyndahátíð verður haldin í Norræna húsinu dagana 26. til 28. september.
Í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna er sérstakur kvennafókus á hátíðinni í ár. Þó nokkrar heimildarmyndir á hátíðinni í ár fjalla sérstaklega um málefni kvenna og við erum stolt af því að yfir 50 kvenleikstjórar koma að verkum í meginflokkum hátíðarinnar og eru kynjahlutföll því næsta jöfn þar. Verkefnið Stelpur filma er af þessu tilefni unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg en dagana 14. til 19. september verður haldið úti sérstakar vinnusmiðjur fyrir ungar stúlkur í kvikmyndagerð undir handleiðslu kvenna sem getið hafa sér gott orð í kvikmyndagerð.
Heiðurgestir hátíðarinnar að þessu sinni eru kanadíski leikstjórinn David Cronenberg og þýska leikstýran Margarethe von Trotta. Ásamt því að verk þeirra verða sýnd á hátíðinni munu þau sitja fyrir svörum eftir sýningu mynda og standa fyrir meistaraspjöllum fyrir áhugasama.
Sýndar verða tvær myndir eftir Sólveigu Anspach, henni til heiðurs, sem féll frá fyrr á árinu. Þá verður staðið fyrir umræðum um höfundaverk hennar.
Auk þessa verður yfir tugur sérviðburða á hátíðinni. Tvennir tónleikar, kvennauppistand um kvikmyndir, kvikmyndasýning og dáleiðsla, sjónræna matarveisla, sérsýning og tónleikar fyrir eldri borgara og margt fleira.
Yfir hundrað erlendir gestir munu sækja hátíðina heim, bæði leikstjórar myndanna, framleiðendur, dreifingaraðilar og blaðamenn. Eins og undanfarin ár verða sérstakir Bransadagar á hátíðinni með sérstakri dagskrá fyrir okkar erlenda gesti, dagana 30. september til 3. október.
Talent Lab verður á sínum stað en um 50 ungir kvikmyndagerðarmenn frá öllum heimshornum munu koma saman í Reykjavík til að sækja vinnusmiðjur og umræður, kynnast innbyrðis og sýna verk sín. Börkur Gunnarsson, kvikmyndagerðarmaður hefur yfirumsjón með verkefninu.
Miðasala er í fullum gangi inn á: http://riff.is/en
Að neðan er að finna ítarlegri dagskrá hátíðarinnar í ár.
VITRANIR / NEW VISIONS
Í Vitrunum tefla tólf leikstjórar fram sinni fyrstu eða annarri mynd og keppa um aðalverðlaun hátíðarinnar, Gullna lundann.
AS I OPEN MY EYES / ÞEGAR ÉG OPNA AUGUN / A PEINE J’OUVRE LES YEUX
Director: Leyla Bouzid FRA/TUN/BEL/UAE 2015 / 102 min
BABAI / BABAI
Director: Visar Morina KOS/GER 2015 / 104 min
BARASH / BARASH
Director: Michal Vinik ISR 2015 / 83 mins
KRISHA / KRISHA
Director: Trey Edward Shults USA 2015 / 83 min
MEDITERRANEA / VIÐ MIÐJARÐARHAF
Director: Jonas Carpignano ITA/FRA/USA/GER/QAT 2015 / 107 min
MOTHERLAND / FÓSTURJÖRÐ / ANA YURDU
Director: Senem Tüzen TUR/GRC 2015 / 93 min
SLEEPING GIANT / RISINN SEFUR
Director: Andrew Cividino CAN 2015 / 89 min.
SLOW WEST / HÆGT Í VESTUR
Director: John Maclean GBR/NZL. 2015 / 84 min.
SPARROWS / ÞRESTIR
Director: Rúnar Rúnarsson ICE/DEN/CRO 2015 / 99 min
THE HERE AFTER / FRAMHALDSLÍF / EFTERSKALV
Director: Magnus von Horn DEN 2015 / 102 min
WE MONSTERS / VÉR SKRÍMSLI / WIR MONSTER
Director: Sebastian Ko GER 2015 / 95 min
WEDNESDAY MAY 9 / MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ / CHAHARSHANBEH, 19 ORDIEBEHESHT
Director: Vahid Jailvand IRA 2015 / 102 min
FYRIR OPNU HAFI / OPEN SEAS
Á hverju ári þyrla sömu myndirnar upp ryki á kvikmyndahátíðum víða um heim. Þetta eru meistarastykki sem eru sum hver úr smiðju þekktra kvikmyndagerðarmanna meðan önnur koma áhorfendum algerlega í opna skjöldu.
A MONSTER WITH A THOUSAND HEADS / ÞÚSUND HÖFÐA SKRÍMSLI / UN MONSTRUO DE MIL CABEZAS
Director: Rodrigo Plá MEX 2015 / 75 min.
CHASUKE’S JOURNEY / JARÐARFÖR CHASUKE / TEN NO CHASUKE
Director: Hiroyuki Tanaka (Sabu) JAP/FRA 2014 / 106 min
CHEVALIER / RIDDARI
Director: Athina Rachel Tsangari GRC 2015 / 99 min
EISENSTEIN IN GUANAJUATO / EISENSTEIN Í GUANAJUATO
Director: Peter Greenaway NED/BEL/FIN/MEX/FRA 2015 / 105 min.
EMBRACE OF THE SERPENT / FAÐMLAG NÖÐRUNNAR / EL ABRAZO DE LA SERPIENTE
Director: Ciro Guerra COL/VEN/ARG 2015 / 125 min.
FRANCOFONIA / FRANCOFONIA
Director: Aleksandr Sokurov FRA/GER 2015 / 90 min.
JOURNEY TO THE SHORE / STRANDFÖRIN / KISHIBE NO TABI
Director: Kiyoshi Kurosawa JAP 2015 / 127 min
LAST DAYS IN THE DESERT / SÍÐUSTU DAGARNIR Í EYÐIMÖRKINNI
Director: Rodrigo Garcia USA 2015 / 98 min
MOUNTAINS MAY DEPART / FJÖLLIN GÆTU FLÚIÐ / SHAN HE GU REN
Director: Zangke Jia CHI 2015 / 131 min.
MUSTANG / MUSTANG
Director: Deniz Gamze Ergüven FRA/GER/QUA/TUR 2015 / 97 min.
TALE OF TALES / SAGNASVEIGUR / IL RACCONTO DEI RACCONTI
Director: Matteo Garrone ITA/FRA/GBR 2015 / 125 min
TANGERINE / MANDARÍNA
Director: Sean Baker USA 2015 / 88 mín.
THE MEASURE OF A MAN / MÆLIKVARÐI MANNS / LA OI DU MARCHÉ
Director: Stéphane Brizé FRA 2015 / 93 min.
THOSE WHO FALL HAVE WINGS / ÞEIR SEM FALLA HAFA VÆNGI / JEDER DER FÄLLT HAT FLÜGEL
Director: Peter Brunner AUS 2015 / 93 min.
ÖNNUR FRAMTÍÐ / A DIFFERENT TOMORROW
Í flokknum Önnur framtíð er að finna áhrifamiklar kvikmyndir um mannréttinda- og umhverfismál. Bíó getur breytt heiminum.
ATTACKING THE DEVIL / RÁÐIST GEGN DJÖFLINUM
Director: Jacqui Morris & David Morris GBR 2015 / 99 min
DREAMCATCHER / DRAUMAFANGAR
Director: Kim Longinotto GBR/USA 2015 / 104 min
DRONE / FLYGILDI
Director: Tonje Hessen Schei NOR/PAK/USA 2014 / 78 min
HAIDA GWAII: ON THE EDGE OF THE WORLD / HAIDA GWAII: Á JAÐRI VERALDAR
Director: Charles Wilkinson CAN 2015 / 74 min
HOW TO CHANGE THE WORLD / SVONA BREYTIRÐU HEIMINUM
Director: Jerry Rothwell CAN/GBR 2015 / 110 min
LAST OF THE ELEPHANT MEN / SÍÐUSTU FÍLAHIRÐARNIR
Directors: Arnaud Bouquet, Daniel Ferguson, George Jefferies FRA/CAN/CAM 2015 / 90 min
PLANETARY / JARÐARBÚAR
Director: Guy Reid GBR/CAN/IND/NEP/TAN/USA/VIE 2015 / 85 min
SUGAR COATED / SYKURHÚÐAÐ
Director: Michèle Hozer CAN 2015 / 90 min
THE MESSENGER / SENDIBOÐINN
Director: Su Rynard CAN/FRA/CRC/GER/NED/TUR/USA 2015 / 84 min
THE SHORE BREAK / STRANDBROT
Direcor: Ryley Grunenwald RSA 2014 / 90 min
HEIMILDARMYNDIR
Heimildarmyndadagskráin okkar verður sífellt vinsælli.
1989 / 1989
Director: Anders Østergaard & Erzsébet Rácz DEN/GER/HUN/NOR 2014 / 97 min
A FLICKERING TRUTH / FLÖKTANDI LJÓS SANNLEIKANS
Director: Pietra Brettkelly NZL/AFG 2015 / 91 min
AROUND THE WORLD IN 50 CONCERTS / UMHVERFIS HEIMINN Á 50 TÓNLEIKUM / OM DE WERELD IN 50 CONCERTEN
Director: Heddy Honigmann AUS/FIN/SWE/NED 2014 / 95 min
CARTEL LAND / GLÆPALAND
Director: Matthew Heineman MEX/USA 2015 / 98 min
CAVANNA, HE WAS CHARLIE / CAVANNA VAR CHARLIE / CAVANNA: JUSQU’À L’ULTIME SECONDE J’ÉCRIRA
Directors: Nina & Denis Robert FRA 2015 / 94 min
COMING OF AGE / ÞROSKASAGA
Director: Teboho Edkins LES/GER/RSA 2015 / 63 min
DEMOCRATS / LÝÐRÆÐISSINNAR
Director: Camilla Nielsson DEN 2015 / 100 min
FOODIES / SÆLKERAR
Directors: Thomas Jackson, Charlotte Landelius, Henrik Stockare SWE 2014 / 95 min
INGRID BERGMAN IN HER OWN WORDS / ÉG HEITI INGRID / JÄG ÄR INGRID
Director: Stig Björkman SWE 2015 / 114 min
JIA ZHANG-KE: A GUY FROM FENYANG / JIA ZHANG-KE: NÁUNGI FRÁ FENYANG
Director: Walter Salles BRA/CHI 2014 / 105 min
LEAVING AFRICA / AFRÍKA YFIRGEFIN
Director: Iiris Härmä FIN/UGA 2015 / 84 min
LISTEN TO ME MARLON / HLUSTAÐU Á MIG MARLON
Director: Stevan Riley GBR 2015 / 95 min
PERVERT PARK / PERRAGARÐURINN
Directors: Frida & Lasse Barkfors DEN/SWE/USA 2014 / 75 min
ROLLING PAPERS / JÓNUFRÉTTIR
Director: Mitch Dickman USA/URU 2015 / 79 mins
SPEED SISTERS / KAPPAKSTURSKONUR
Director: Amber Fares PAL/USA/QAT/GBR/DEN/CAN 2015 / 80 min
SWEET MICKY FOR PRESIDENT / MIKKA SÆTA SEM FORSETA
Director: Ben Patterson USA/HAI/CAN 2015 / 89 min
THE AMINA PROFILE / PRÓFÍLL AMINU
Director: Sophie Deraspe CAN 2015 / 84 min
THE ARMS DROP / VOPNAREGN / VÅBENSMUGLINGEN
Director: Andreas Koefoed DEN/GBR/IND 2014 / 94 min
THE CIRCUS DYNASTY / SIRKUSVELDIÐ / CIRKUSDYNASTIET
Director: Anders Riis-Hansen DEN 2014 / 95 min
THE CLOSER WE GET / ÞVÍ NÆR SEM VIÐ FÆRUMST
Director: Karen Guthrie GBR/ETH 2015 / 87 min
THE LIVING FIRE / ELDURINN LIFANDI / ЖИВА ВАТРА
Director: Ostap Kostyuk UKR 2014 / 77 min
THE QUEEN OF SILENCE / DROTTNING ÞAGNARINNAR
Director: Agnieszka Zwiefka GER/POL 2014 / 83 min
THE WANTED 18 / 18 EFTIRLÝSTAR
Director: Amer Shomali, Paul Cowan PAL/CAN/FRA 2014 / 75 min
WAR OF LIES / BLEKKINGASTRÍÐ / KRIEG DER LÜGEN
Director: Matthias Bittner GER 2014 / 89 min
WARRIORS FROM THE NORTH / STRÍÐSMENN ÚR NORÐRI / KRIGERNE FRA NORD
Directors: Nasib Farah, Søren Steen Jespersen DAN/SOM 2015 / 59 min
WHO TOOK JOHNNY / HVER TÓK JOHNNY?
Director: David Beilinson, Michael Galinsky, Suki Hawley USA 2014 / 77 min
ÍSLAND Í BRENNIDEPLI / ICELANDIC PANORAMA
CHASING ROBERT BARKER / Á HÆLUNUM Á ROBERT BARKER
Director: Daniel Florencio ICE/GBR 2015 / 90 min
IN THE SAME BOAT / Á SAMA BÁTI
Director: Halla Mia ICE/CAN 2015 / 39 min
LOBSTER SOUP INCLUDED / HUMARSÚPA INNIFALIN
Director: Styrmir Sigurðsson ICE 2015 / 48 min
O, BRAZEN AGE / Ó, SKAMMLAUSA ÖLD
Director: Alexander Carson ICE/CAN 2015 / 80 min
LOKAMYND / CLOSING FILM
TRAPPED / ÓFÆRÐ
Director: Baltasar Kormákur og Baldvin Z ICE 2015 / 2×40 min
SJÓNARRÖND: DANMÖRK / IN FOCUS DENMARK
A SECOND CHANCE / ANNAÐ TÆKIFÆRI / EN CHANCE TIL
Director: Susanne Bier DEN/SWE 2014 / 102 min
A WAR / STRÍÐIÐ / KRIGEN
Director: Tobias Lindholm DEN 2015 / 115 min
THE BRIDGE / BRÚIN / BROEN
Director: Henrik Georgsson DEN/SWE/GER 2015 / 2 x 60 min
GOLD COAST / GULLSTRÖNDIN / GULDKYSTEN
Director: Daniel Dencik DEN/SWE/GHA 2015 / 114 mins
IN YOUR ARMS / Í ÞÍNUM HÖNDUM / I DINE HÆNDER
Director: Samanou Acheche Sahlstrøm DEN 2015 / 83 min
LONG STORY SHORT / LANGA SÖGU STUTTA / LANG HISTORIE KORT
Director: May el-Toukhy DEN 2015 / 100 min
MEN AND CHICKEN / MENN OG HÆNSN / MÆND OG HØNS
Director: Anders Thomas Jensen DEN/GER 2015 / 104 min
ROSITA / ROSITA
Director: Frederikke Aspöck DEN 2015 / 90 min
SILENT HEART / ÞÖGLA HJARTA / STILLE HJERTE
Director: Bille August DEN 2014 / 97 min
ÍSLENSKAR STUTTMYNDIR
ACEDIA / SPEGILMYND
Director: Erla Hrund Halldórsdóttir ICE / 14 min
ECHO / BERGMÁL
Director: Atli Þór Einarsson ICE / 9 min
HEY DAD – BEEN A LONG TIME / HÆ PABBI – ÞÓTT VIÐ ÞEKKJUMST EKKI NEITT
Director: Haukur Karlsson ICE / 16 min
HEIMILDAMINND / DOCYOUMENTORY
Director: Jón Ásgeir Karlsson ICE / 4 min
PATTERN / MYNSTUR
Director: Valdimar Kúld ICE / 15 min
UNFOLDED / ROF
Director: Kristín Ísabella Karlsdóttir ICE / 10 min
YOU AND ME / ÞÚ OG ÉG
Director: Ása Helga Hjörleifsdóttir ICE / 13 min
THE CATMAN / KATTAMAÐURINN
Director: Barði Guðmundsson ICE / 19 min
RAINBOW PARTY / REGNBOGAPARTÝ
Director: Eva Sigurðardóttir ICE / 15 min
ZELOS
Director: Þóranna Sigurðardóttir USA/ICE / 15 min
BABEL LTD / BABEL HF.
Director: Smári Gunnarsson ICE / 15 min
DESERT TALKS / EYÐIMERKURSPJALL
Director: Ferrier Aurèle SUI/ICE/CHI
TORTURE.AVI / PYNDING.AVI
Director: Dan Nicholls CAN/ ICE 7 min
IMMIGRANT / INNFLYTJANDI
Directors: Einar Erlingsson & Jón Bragi Pálsson ICE / 4 min
BROTHERS / BRÆÐUR
Director: Þórður Pálsson ICE/GBR / 23 min
NARRATIVE CONFLICT / NARRATIVE CONFLICT
Director: Jónas Haux ICE/DEN / 7 min
ERLENDAR STUTTMYNDIR
A CONFESSION / JÁTNINGIN
Director: Petros Silvestros GBR 2015 / 9 min
APRIL’S FOOLS / APRÍLGABB
Director: Jonathan Dekel ISR 2014 / 25 min
ASTRONAUTS / GEIMFARAR / DIE RAUMFAHRER
Director: Bastian Gascho GER 2015 2/ 0 mins
UNLEADED / BLÝLAUST / SANS PLOMB
Director: Emmanuel Tenenbaum CAN/FRA/AHO/NED 2015 / 7 min
GERMAN SHEPHERD / ÞÝSKUR FJÁRHUNDUR
Director: Nils Bergendal SWE 2014 / 10 min
WHEN I CLOSE MY EYES / ÞEGAR ÉG LOKA AUGUNUM / LE PLI DANS L’ESPACE
Director: Ann-Julie Vervaeke BEL 2015 15 min
MIKE
Director: Petros Silvestros GBR 2014 / 7 min
LANCASTER, CA
Director: Mike Ott USA 2015 / 12 min
THE PSYCHONAUT / GEÐFARINN / PSYKONAUTEN
Director: Jon Vatne NOR 2015 / 14 min
JAY AMONGST MEN / JAY MEÐAL MANNA / JAY PARMI LES HOMMES
Director: Zeno Graton BEL/FRA 2015 / 28 min
THE STRANGER / SÁ ÓKUNNUGI
Director: Ka Ki Wong HKG 2014 19 min
SAFE SPACE / ÖRUGGT SVÆÐI / GESCHÜTZTER RAUM
Director: Zora Rux GER 2014 / 13 min
EXIT/ENTRANCE OR TRANSUMANA / ÚTGANGUR/INNGANGUR
Director: Federica Foglia ITA/CAN 2015 / 7 min
Í SVIÐSLJÓSINU: FÆREYJAR OG GRÆNLAND
FALLING ANGELS / FALLNIR ENGLAR / SUM EINGLAR VIT FALLA
Director: Maria Winther Olsen FRO 2015 / 28 min
GUILT / SEKT / SKULD
Director: Heidrik á Heygum FRO/DEN 2014 / 29 min
ONCE THE ICE MELTS / ÞEGAR ÍSINN BRÁÐNAR
Director: Egill Bjarnason USA/ICE 2015 / 19 mins
DARK SIDE OF THE MIND / INNRI MYRKUR / TAARSIARTULERNERUP TOQQORTAI
Director: Minik Bidstrup Petersen GRL 2015 / 28 min
HALF & HALF / HÉR OG ÞAR
Director: Aka Hansen GRL/DEN 2015 / 3 min
GULLNA EGGIÐ / THE GOLDEN EGG
AWAKENING
Director: Anais Lorie GBR / 20 min
KARUCEL
Director: Marya Yavorskaya FRA / 5 min
THE LOYALIST
Director: Minji Kang USA / 20 min
BESIDE THE POINT, UNDER IT
Director: Yuval Shapira USA / 8 mins
SAMMY CAN’T DANCE
Director: Ryan McLoughlin GBR / 20 min
RIGHTEOUS
Director: Cory Bowles CAN / 12 min
PARALYSIS
Director: Anais Volpe FRA / 10 min
BODY
Director: Lucas Cassales BRA / 16 min
WINTER HYMNS
Director: Harry Cherniak & Dusty Mancinelli CAN / 16 min
BETWEEN BLACK AND WHITE
Director: Socrates GRC / 15 min
SADIE
Director: Latonia Hartey CAN / 14 min
ANADYÓMENES TOPÍO
Director: Chemana Eliot NED/FRA / 5 min
DESERTS
Director: Irene Gomez Emilsson GBR / 20 min.
HEIÐURSVERÐLAUNAHAFAR
Fyrir æviframlag til kvikmyndalistarinnar
DAVID CRONENBERG:
DEAD RINGERS / NÁKVÆMLEGA EINS
Director: David Cronenberg CAN/USA 1988 / 116 min
EASTERN PROMISES / AUSTRÆN LOFORÐ
Director: David Cronenberg CAN/USA/GBR 2007 / 100 min
THE FLY / FLUGAN
Director: David Cronenberg CAN/USA/GBR 1986 / 96 min
THE BROOD / GOTIÐ
Director: David Cronenberg CAN 1979 / 92 min
CRASH / ÁREKSTUR
Dierctor: David Cronenberg CAN/GBR 1996 / 100 min
MARGARETHE VON TROTTA:
MARIANNE AND JULIANE / ÞÝSKU SYSTURNAR / DIE BLEIERNE ZEIT
Director: Margarethe von Trotta FRG/NED 1981 / 106 min
ROSENSTRASSE / RÓSASTRÆTI
Director: Margarethe von Trotta GER/NED 2003 / 136 min
THE MISPLACED WORLD / Í TÝNDUM HEIMI / DIE ABHANDENE WELT
Director: Margarethe von Trotta GER 2014 / 101 min
SÓLVEIG ANSPACH
TIL MINNINGAR / IN MEMORIAM
LULU IN THE NUDE / NAKIN LULU / LULU FEMME NUE
Director: Sólveig Anspach FRA 2013 / 107 min
MADE IN THE USA / FRAMLEITT Í BANDARÍKJUNUM
Director: Sólveig Anspach FRA 2001 / 105 min
SÉRVIÐBURÐIR / SPECIAL EVENTS
25. SEPTEMBER KL. 21:00 TJARNARBÍÓ – 2.000 KR.
SMALL STAR SEMINAR:
TÓNLEIKAR MEÐ CORY MCABEE / CORY MCABEE CONCERT
Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Cory McAbee (Crazy and Thief, Stingray Sam, The American Astronaut) heldur tónleika sem verða teknir upp fyrir heimildarmyndina ‘Small Star Seminar.’ McAbee ferðast til valinna landa og flytur tónleikadagskrá fyrir hönd Small Star Corporation, sem vill að fólk gefi markmið sín upp á bátinn og leiti að stjörnunum innra með sér. Upphitun verður í höndum kammerpönksveitarinnar Malneirophrenia sem heldur stutta kvikmyndatónleika við myndbrot úr ‘The Last Man On Earth’ (1964).
25. SEPTEMBER KL. 20:00-02:00 HÁSKÓLABÍÓ – 3.500 KR.
MIDNIGHT MADNESS / MIÐNÆTURSTURLUN:
CRONENBERG – ‘BARON OF BLOOD’ MARAÞON
Maraþonsýning á eldri hrollvekjum David Cronenberg í samstarfi við Nexus. Fjallað verður stuttlega um verk Cronenberg fyrir sýningu og sérstakar veitingar verða til sölu. Sýndar verða myndirnar:
Kl. 20:00 Dead Ringers (1988)
Kl. 22:00 Brood (1979) Kl.
Kl. 24:00 Fly (1986)
26. SEPTEMBER KL. 16:00 LOFT HOSTEL AÐGANGUR – ÓKEYPIS / FREE
BESTA MÍNÚTAN VERÐLAUNUÐ / ONE MINUTE AWARD
Verðlaunaafhending í einnar mínútu myndakeppni RIFF, sýning á völdum myndum sem voru sendar inn í keppnina og tónleikar með skemmtilegri hljómsveit. Einnar mínútu myndirnar eru allar túlkun á þemanu „barátta.“ Keppnin var haldin í samstarfi við LOFT Hostel og franska sendiráðið.
26. SEPTEMBER KL. 19:30 BORG RESTAURANT
SJÓNRÆN MATARVEISLA / CINEMATIC/CULINARY EXPERIENCE
‘FOODIES’ Q&A
‘Foodies’ segir frá annáluðum sælkerum og matargagnrýnendum sem ferðast um heiminn og snæða besta mat sem völ er á. Við þessa viðhafnarsýningu njóta gestir sælkeraveislu sem kokkarnir á Borg Restaurant reiða fram á meðan sýningu myndarinnar stendur. Einstök kvöldstund þar sem ástríðufull matargerð og kvikmyndagerð fara saman. Takmarkað miðaframboð. Miðar seldir á riff.is
26. SEPTEMBER KL. 21:00 SUNDHÖLLIN Í REYKJAVÍK – 1.500 KR.
SUNDBÍÓ / SWIM-IN CINEMA SUSPIRIA
Hryllingsmyndin Suspiria (1977, Dario Argento) er sýnd í sundi með tilheyrandi skreytingum í takt við þessa vel þekktu og súrrealísku költ-mynd. Suspiria fjallar um dansara sem kemur frá New York til Þýskalands til þess að læra við þekktan ballettskóla. Ekki er allt sem sýnist innan veggja skólans og undarlegir hlutir fara að gerast fyrir tilstilli illra afla.
BANNAÐ INNAN 16 ÁRA / AGES 16 AND OVER
27. SEPTEMBER KL. 14:00 SUNDLAUG KÓPAVOGS – 800 KR.
SUNDBÍÓ FYRIR BÖRN OG FJÖLSKYLDUR / SWIM-IN CINEMA FOR KIDS AND FAMILIES
MÚMÍNÁLFARNIR OG HALASTJARNAN / MOOMINS AND THE COMET CHASE
Skemmtilegt sundbíó með tilheyrandi stuði fyrir börn og fjölskyldur. Kvikmyndin ‘Múmínálfarnir og halastjarnan’ verður sýnd, með íslensku tali, við ylvolga og grunna sundlaug. Gestir fá kynningu á múmínálfunum fyrir kvikmyndasýninguna. Ókeypis drykkir í boði á bakkanum!
ÓKEYPIS FYRIR BÖRN YNGRI EN 10 ÁRA / FREE FOR KIDS UNDER 10 YEARS
28. SEPTEMBER KL. 20:00 LOFT HOSTEL
HALTU KJAFTI & SKRIFAÐU HANDRIT / SHUT UP & WRITE A SCRIPT
Fólki er boðið að koma hugmynd á blað eða skrifa handrit í þögn í eina klukkustund. Handritshöfundurinn Margrét Örnólfsdóttir verður með kynningu á handritaskrifum og ræðir við gesti að skrifum loknum. Haltu kjafti & skrifaðu var stofnað í New York og hafa viðburðir að þeirri fyrirmynd verið haldnir um allan heim. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Meðgönguljóð og LOFT Hostel.
AÐGANGUR ÓKEYPIS / FREE
28. SEPTEMBER KL. 15:00 GJÁBAKKI, KÓPAVOGI ÓKEYPIS / FREE
SÉRSÝNING Í GJÁBAKKA / SCREENING IN GJÁBAKKI
‘HVER STUND MEÐ ÞÉR’
Leikstj. Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir
Sýning á nýrri heimildarmynd. Ólafur Björn Guðmundsson orti ástarljóð til konu sinnar, Elínar Maríusdóttur, á 60 ára tímabili. Að þeim liðnum samdi barnabarn þeirra, Anna María Björnsdóttir, tónlist við ljóðin og gaf út á plötunni ‘Hver stund með þér.’ Að sýningu lokinni ræða kvikmyndagerðarmennirnir við gesti og lifandi tónlist verður leikin.
29. SEPTEMBER KL. 20:00 GERÐARSAFN – 1.500 KR.
DÁLEIÐSLA OG KVIKMYNDALIST / HYPNOSIS AND FILMMAKING
Franski dávaldurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Gurwann Tran Van Gie var valinn sem listamaður ársins í árlegu samstarfi þriggja hátíða: RIFF, Hors Pistes hátíðarinnar í París og Air d’Islande. Hann sýnir nýjasta kvikmyndaverkefni sitt ‘Honest Experience’ og verður með hópdáleiðslu við tónlist að kvikmyndasýningu lokinni. ‘Honest Experience’ er tilraunakennd mynd sem fjallar um heilindi. Við kynnumst fjórum einstaklingum sem eru dáleiddir af Gurwann. Hann spyr þau út í sannleikann um það sem knýr þá áfram til þess að skapa og hafa áhrif. Sýningin fór fyrst fram á Pompidou safninu í París í janúar.
30. SEPTEMBER KL. 17:00-18:30 GERÐARSAFN – AÐGANGUR ÓKEYPIS / FREE
Culture.pl og RIFF kynna:
PÓLSKAR HREYFIMYNDIR / POLISH ANIMATION
Wojtek Wawszczyk og Zofia Scislowska frá pólsku hreyfimyndasamtökunum kynna verk á sviði hreyfimynda og tæknibrellna. Þau sýna fjórar myndir: ‘Ziegenort,’ ‘Hipopotamy,’ ‘The Lost Town of Switez’ og ‘Chick.’
30. SEPTEMBER KL. 20:00 MOLINN, HÁBRAUT 2, KÓPAVOGI – AÐGANGUR ÓKEYPIS / FREE
HUMARSÚPA INNIFALIN / LOBSTER SOUP INCLUDED
Sérsýning á íslensku gaman-heimildarmyndinni ‘Humarsúpa innifalin’ sem fylgir skemmtikraftinum Þorsteini Guðmundssyni eftir á ferðlagi hans frá Reykjavík til Hríseyjar. Að sýningu lokinni ræðir leikstjóri myndarinnar, Styrmir Sigurðsson og Þorsteinn sjálfur, um myndina við áhorfendur.
30. SEPTEMBER KL. 20:00 Q&A TJARNARBÍÓ – 1.500 KR.
ÞÁTTTÖKU-KVIKMYNDASÝNING Á SUFFERROSA SUFFERROSA / LIVE CINEMA PERFORMANCE
Sýning á ‘Sufferrosa’ eftir The Kissinger Twins. Spurt og svarað að sýningu lokinni.
Listatvíeykið The Kissinger Twins samanstendur af þeim Dawid Marcinkowski og Kasia Kifert. Þau koma frá Póllandi og hafa vakið athygli á heimsvísu fyrir einstakar þátttöku-kvikmyndasýningar. Kvikmyndir þeirra sameina kvikmyndagerð, tækni internetsins og virkja um leið áhorfendur sem verða að þátttakendum. Sýning þeirra er styrkt af menningarmálaráðuneyti Póllands og kvikmyndamiðstöð Póllands.
‘Sufferosa’ er ein helsta þátttökukvikmynd The Kissinger Twins og eitt stærsta verkefni sem hefur sameinað kvikmyndagerð og internetið. Myndin inniheldur 110 senur, þrjá ólíka enda og gerist á 20 stöðum. ‘Sufferosa’ hefur unnið til verðlauna og er fyrsta þátttökukvikmyndin sem hefur ferðast á milli kvikmyndahátíða sem lifandi kvikmyndasýning. Þetta er nýrökkursatíra um æsku- og útlitsdýrkun nútímasamfélags sem hefst þegar rannsóknarlögreglumaðurinn Ivan Johnsson fer að leita að horfinni konu.
2. OKTÓBER KL. 16:00 GERÐARSAFN – AÐGANGUR ÓKEYPIS / FREE
Culture.pl og RIFF kynna:
PÓLSK KVIKMYNDA- OG MYNDLIST / POLISH CINE ART
Kvikmyndin ‘The Performer’ (2015, 62 mín), í leikstjórn Maciej Sobieszczanski og Lukasz Ronduda, er sýnd. Að sýningu lokinni taka við umræður þar sem ritstjórar bókarinnar ‘Polish Cine Art,’ þau Jakub Majmurek og Lukasz Ronduda (annar leikstjóri Performer), fjalla um notkun pólskra myndlistarmanna á kvikmyndamiðlinum. ‘The Performer’ er listasýning í formi kvikmyndar sem byggir á lífi gjörningalistamannsins Oskar Dawicki, sem leikur sjálfan sig.
2. OKTÓBER KL. 20:00 SALURINN – 3.900 KR.
KVIKMYNDATÓNLEIKAR / FILM CONCERT
KVÖLDSTUND MEÐ WOODY ALLEN / A NIGHT WITH WOODY ALLEN
Það eru ekki bara mannlegir brestir sem heilla við kvikmyndir Woody Allen heldur leikur tónlistin einnig mjög stórt hlutverk í þeim öllum. Mestmegnis er það djass frá fimmta, sjötta og sjöunda áratugnum sem er Allen hjartfólginn.
Á tónleikunum mun Jazzkvintettinn Bananas leika lög úr mörgum myndum Woody Allen og leikkonan Edda Björg Eyjólfsdóttir ferðast með okkur í gegnum kvikmyndasögu leikstjórans á lifandi hátt svo áhorfendur geti rifjað upp kynni sín af persónum og leikendum Allens allt frá Radio Days til Manhattan, og Systrum Hönnu til Annie Hall.
1. OKTÓBER KL. 21:00 STÚDENTAKJALLARINN – AÐGANGUR ÓKEYPIS / FREE
KVIKMYNDAUPPISTAND / STAND-UP COMEDY SHOW
GOmobile, Stúdentakjallarinn og RIFF kynna: Staða og birtingarmynd kvenna í kvikmyndum hefur verið í deiglunni. Nú stíga fyndnustu konur landsins fram og tala um upplifun sína af kvikmyndum og kynjagleraugum. Búið ykkur undir flugbeitta brandara og frussandi hláturköst. Uppistandið fer fram á íslensku.
Uppistandarar: Bylgja Babýlóns, Edda Björgvinsdóttir, Snjólaug Lúðvíksdóttir og Þórdís Nadia Semichat.
FRÆÐSLA OG MEISTARASPJÖLL / EDUCATION AND MASTERCLASSES
25. SEPTEMBER KL. 18:00 NORRÆNA HÚSIÐ – 1.400 KR.
PLANETARY Q&A
Mennirnir hafa aldrei getað tengst hver öðrum á jafn fljótlegan og auðveldan hátt eins og nú, en á sama tíma rofna tengsl okkar við náttúruna óhemju hratt. Í heimildarmyndinni ‘Planetary’ er fjallað um þetta rof. Leikstjórinn Guy Reid ræðir við gesti um hætturnar sem fylgja sambandsleysinu að lokinni sýningu á myndinni.
26. SEPTEMBER KL. 14:30 LOFT HOSTEL – AÐGANGUR ÓKEYPIS / FREE
YOUNG NORDIC TALENTS
Kynning á Young Nordic Talents og sýning á kvikmyndaverkum sem unnin voru á námskeiðinu. Young Nordic Talents er haldið í fyrsta sinn í ár. 24 ungir kvikmyndagerðarmenn, 18-26 ára, frá Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Noregi, Þýskalandi og Íslandi sameinast í Reykjavík dagana 21. til 27. september og vinna saman að kvikmyndaverkefnum.
26. SEPTEMBER KL. 17:30 BÍÓ PARADÍS – 1.400 KR.
SPEED SISTERS Q&A
‘Speed Sisters’ (2015) er heimildarmynd um fimm palestínskar konur sem keppa í kappakstri á Vesturbakkanum. Amber Fares, leikstjóri myndarinnar, kemur til landsins og ræðir myndina, Palestínu og stöðu palestínskra kvenna við Bryndísi Silju Pálmadóttur, stjórnarkonu í Íslandi-Palestínu og Arnar Gíslason kynjafræðing að sýningu lokinni. Viðburðurinn er haldinn í samvinnu við samtökin Ísland-Palestína.
27. SEPTEMBER KL. 14:00-18:00 MOLINN, HÁBRAUT 2, KÓPAVOGI – AÐGANGUR ÓKEYPIS / FREE
SMIÐJA / WORKSHOP
KVIKMYNDAKOMMÚNAN / THE FILM COMMUNE
Kvikmyndakommúnan býður upp á opna kennslustund og kynningu á starfi sínu. Um er að ræða nýstofnað samfélag upprennandi kvikmyndagerðarmanna sem veitir ókeypis menntun og hvatningu. Lára Marteinsdóttir kvikmyndagerðarmaður kennir.
29. SEPTEMBER KL. 15:00 NORRÆNA HÚSIÐ / NORDIC HOUSE
MEISTARASPJALL / MASTERCLASS
MARGARETHE VON TROTTA
Hér ræðir Margarethe von Trotta, heiðursverðlaunahafi RIFF, verk sín, vinnuaðferðir og persónusköpun.
30. SEPTEMBER KL. 13:00 – HÁTÍÐARSALUR HÍ / UNIVERSITY OF ICELAND (MAIN HALL)
MEISTARASPJALL / MASTERCLASS
DAVID CRONENBERG
Heiðursverðlaunahafinn David Cronenberg ræðir verk sín og svarar spurningum áhorfenda.
1. OKTÓBER KL. 12:00 NORRÆNA HÚSIÐ – AÐGANGUR ÓKEYPIS / FREE
UMRÆÐUR / DISCUSSION
AÐ VELJA Á KVIKMYNDAHÁTÍÐ / SELECTING FESTIVAL FILMS
Hvaða áhrif hafa viðtökur og fjárhagur á ákvarðanir dagskrárstjóra? Hafa ákvarðarnir þeirra bein áhrif á það hvaða myndir eru valdar til dreifingar og hvaða kvikmyndagerðarmenn komast áfram? Ætti valferlið að vera gagnsærra?
1. OKTÓBER KL. 18:00 NORRÆNA HÚSIÐ – AÐGANGUR ÓKEYPIS / FREE
MEISTARASPJALL / MASTERCLASS
KISSINGER TWINS
Kissinger Twins fjalla um listsköpun sína og sín helstu verk frá árinu 2002. Á meðal verka eru Sufferrosa, The Trip, Forget Me Not og The Network is Watching.
2. OKTÓBER KL. 13:00 NORRÆNA HÚSIÐ – AÐGANGUR ÓKEYPIS / FREE
UMRÆÐUR / DISCUSSION
DÖNSK KVIKMYNDAGERÐ / DANISH FILMMAKING
Danskar kvikmyndir og sjónvarpsefni hafa vakið verðskuldaða athygli á undanförnum áratugum og mikill fjöldi frábærra kvikmynda komið þaðan sem hafa sópað til sín verðlaunum um allan heim. RIFF býður upp á úrval danskra mynda í ár og hér verður rætt um sérstöðu danskrar kvikmyndagerðar.
Þátttakendur tilkynntir á riff.is
2. OKTÓBER KL. 16:00 CENTER HOTEL PLAZA V/ INGÓLFSTORG – AÐGANGUR ÓKEYPIS / FREE
ÍSLENSK KVIKMYNDATÓNSKÁLD / ICELANDIC FILM COMPOSERS
ATLI ÖRVARSSON Q&A
Íslensk kvikmyndatónskáld hafa náð langt að undanförnu. Hér sjáum við brot úr verkum sem Íslendingar hafa samið fyrir nýverið. Að því loknu spjallar leikarinn Gunnar Hansson við kvikmyndatónskáldið Atla Örvarsson sem hefur starfað í Hollywood undanfarin 15 ár.
3 & 4. OKTÓBER KL. 13:00 NORRÆNA HÚSIÐ – AÐGANGUR ÓKEYPIS / FREE
SMIÐJA / WORKSHOP
STELPUR FILMA / GIRLS FILMING
RIFF stendur fyrir námskeiðinu Stelpur filma í samstarfi við Reykjavík í fyrsta sinn. Námskeiðið er fyrir stelpur í 8. og 9. bekk og læra þær af færustu kvikmyndagerðarkonum landsins. Lokað námskeið sem lýkur með frumsýningu á RIFF.
BARNAKVIKMYNDAHÁTÍÐ RIFF / RIFF CHILDREN & YOUTH FESTIVAL
26. SEPT–28. SEPT. NORRÆNA HÚSINU / THE NORDIC HOUSE AÐGANGSEYRIR / ADMISSION 500 KR.
LAUGARDAGUR 26. SEPT.
11:00 Stuttmyndadagskrá fyrir 10 ára og eldri.
13:00 Stuttmyndadagskrá fyrir 4 ára og eldri. Leikkona leiðir börnin í gegnum dagskrána.
14:30 Við fögnum opnun Barnakvikmyndahátíðar með sýningu á plakötum sem við fengum send
í „Litli Lundi fer í bíó“ keppnina. Plakötin verða til sýnis fram á mánudagskvöld.
15:00 Opnunarmynd hátíðarinnar er teiknimyndin ‘Gullni hesturinn’ (á ensku, fyrir 6 ára og eldri, 75 mín.). Leikkonan Thelma Marín Jónsdóttir leiðir börnin og fullorðna fólkið í gegnum dagskrána.
SUNNUDAGUR 27. SEPT.
11:00 Stuttmyndir fyrir 6 ára og eldri.
13:00 Stuttmyndir fyrir 4 ára og eldri. Leikkona leiðir börnin í gegnum dagskrána.
15:00 Stuttmyndir fyrir 14 ára og eldri! Íslensk óvissumynd sýnd og sérstakir leynigestir mæta.
MÁNUDAGUR 28. SEPT.
16:30 Lokahóf Barnakvikmyndahátíðar!
Þegar þú kemur á rauða dregilinn skaltu vara þig á papparössunum sem reyna að ná myndum af þér! Leikkonan Thelma Marín Jónsdóttir tekur á móti ykkur og við tilkynnum sigurvegara í teiknisamkeppninni „Lundi litli fer í bíó“. Eistneska kvikmyndin ‘Leynifélag Súpubæjarins’ (enskur texti, 90 mín.) verður svo sýnd.
BRANSADAGAR / INDUSTRY DAYS
Mánudaginn 28. sept 13.00-16.00 í Norræna húsinu.
Er íslensk kvikmynd góð fjárfesting? – Pallborðsumræður
Í ljósi þeirra alþjóðlegu verðlauna sem kvikmyndirnar Hross í oss, Fúsi og Hrútar hafa hlotið á undanförnum mánuðum sjáum við hjá RIFF merki um að íslensk kvikmyndagerð sé á uppleið. Þar að auki hafa ýmsar íslenskar kvikmyndir (t.d. Svartur á leik og Vonarstræti) fengið ágætis dreyfingu um allan heim. Það er þess vegna sem RIFF stendur fyrir pallborðsumræðum undir yfirskriftinni ,,Er íslensk kvikmyndagerð góð fjárfesting?”
Fundarstjóri: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, forstöðumaður mennta- og
nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnulífsins.
Þátttakendur: Grímar Jónsson, Heiðar Guðjónsson, Gísli Gíslason, Agnes Johansen, Baltasar Kormákur, Rob H. Aft og Rakel Garðarsdóttir.
Þriðjudagur 29. sept 15.00-17.00 í Norræna húsinu.
Masterklassi með leikstjóranum Margreth Von Trotta
Margarethe von Trotta er brautryðjandi í kvikmyndaleikstjórn og ein af frumkvöðlunum sem stóðu að þýsku nýbylgjunni í kvikmyndagerð á sjöunda og áttunda áratugnum. Í fyrstu myndum sínum skoðaði hún samtímamálefni með tilraunakenndum aðferðum þar sem flóknar tæknilegar útfærslur fengu að sitja á hakanum. Hér ræðir Margarethe von Trotta, heiðursverðlaunahafi RIFF, verk sín, vinnuaðferðir og persónusköpun.
Umræðustjóri: Elísabet Ronaldsdóttir, klippari/kvikmyndagerðarkona.
Q&A með David Cronenberg
Leikstjórinn svarar spurningum úr sal eftir sýningu á kvikmyndinni Crash.
(Þessi viðburður er eingöngu fyrir bíógesti – ekki er hægt að koma bara á Q&A.)
Miðvikudagur 30. sept 13.00-15.00 í hátíðarsal Háskóla Íslands
Masterklassi með leikstjóranum David Cronenberg.
Það er okkur einstök ánægja að kynna heiðursgest okkar, hinn mikilsvirta og hæfileikaríka leikstjóra David Cronenberg (einnig þekktur sem konungur kynferðislegra hrollvekja eða blóðbaróninn). Meðal kvikmynda þessa kanadíska meistara eru The Fly, Naked Lunch, A History of Violence og Eastern Promises en ferill hans ætti að tryggja að masterklassinn verði áhugaverður og fróðlegur á sama tíma.
Umræðustjóri: Marteinn Þórsson, leikstjóri.
Fimmtudagur 1. okt 12.00-14.00 í Norræna húsinu
Að velja á kvikmyndahátíð: Pallborðsumræður
Hvaða áhrif hafa viðtökur og fjárhagur á ákvarðanir dagskrárstjóra? Hafa ákvarðarnir þeirra bein áhrif á það hvaða myndir eru valdar til dreifingar og hvaða kvikmyndagerðarmenn komast áfram? Ætti valferlið að vera gagnsærra?
Stjórnandi: Helga Stephenson, fyrrum stjórnandi kvikmh. í Toronto
Þátttakendur: Arnaud Gourmelen, dagskrárstjóri fyrir Director’s Fortnight flokkinn á Cannes, Fredrick Boyer, stjórnandi Tribeca kvikmyndahátíðarinnar, Piers Handling, framkvæmdastjóri Toronto kvikmyndahátíðarinnar
Giorgio Gosetti, stjórnandi Venice Days dagskrárinnar á kvikmhátíðinni í Feneyjum og dagskrárstjóri RIFF.
16.00-18.00 – Rútuferð frá Ráðhúsi Reykjavíkur
Heimsókn til Saga Film
Saga Film hefur yfir 35 ára reynslu af framleiðslu. Upprunalega sáu þau helst um þjónustu á tökustað fyrir Hollywood stórmyndir eins Bond myndina View to a Kill, Batman Begins og Tomb Raider. Saga Film varð svo leiðandi í framleiðslu og leikstjórn á íslenskum auglýsingum og síðar á sjónvarpsþáttum og heimildamyndum.
* Þessi viðburður er eingöngu fyrir boðsgesti og skráða þátttakendur Bransadaga
21.30-22.30
Q&A með David Cronenberg
Leikstjórinn svarar spurningum úr sal eftir sýningu.
(Þessi viðburður er eingöngu fyrir bíógesti – ekki er hægt að koma bara á Q&A.)
Föstudagur 2. okt. 13.00-15.00 í Norræna húsinu
Árangur danskra kvikmynda – pallborðsumræður
Danskar kvikmyndir og sjónvarpsefni hafa vakið verðskuldaða athygli á undanförnum áratugum og mikill fjöldi frábærra kvikmynda komið þaðan sem hafa sópað til sín verðlaunum um allan heim. RIFF býður upp á úrval danskra mynda í ár og hér verður rætt um danskt kvikmyndaumhverfi þar sem einkaaðilar og opinberar stofnanir starfa saman að því að gera frábærar myndir. Danska kvikmyndastofnunin hefur mikið að segja en hún veitir styrki, heldur námskeið og kynnir nýjar myndir.
Stjórnandi: Charlotte Böving, leikkona.
Þátttakendur: Jesper Morthorst, framleiðandi Silent Heart, Mikkel Jersin framleiðandi Þrasta, Rúnar Rúnarsson, leikstjóri Þrasta.
Föstudagur 2. okt 16.00-18.00 á Center hotel Plaza v/ Ingólfstorg
Kynning á íslenskum kvikmyndatónskáldum
Atli Örvarsson kvikmyndatónskáld með Q&A
Íslensk tónlist hefur verið eitt helsta aðdráttarafl landsins frá því Björk sigraði heiminn með einstakri sköpun sinni. Hæfileikar íslenskra tónlistarmanna virðast endalausir og hafa haft áhrif á kvikmyndaiðnaðinn á alþjóðavettvangi. Það er skemmst að minnast þess þegar Ólafur Arnalds hlaut BAFTA verðlaunin fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttaröðinni Broadchurch (2013) og Jóhann Jóhannsson Grammy verðlaun fyrir tónlistina í kvikmyndinni The History of Everything (2014).
Á þessum viðburði sjáum við brot af þeim verkefnum sem íslensk kvikmyndatónskáld hafa verið að sinna nýlega bæði erlendis og hér heima. Að því loknu mun leikarinn Gunnar Hansson spjalla við kvikmyndatónskáldið Atla Örvarsson sem hefur ríflega 15 ár starfað í Hollywood og samið tónlist fyrir kvikmyndir á borð við Vantage Point, Babylon AD, The Eagle, Blóðberg og síðan nú síðast fyrir íslensku verðlaunamyndina Hrútar.
Stjórnandi/spyrill: Gunnar Hansson, leikari og leikstjóri.
DÓMNEFNDIR 2015
UPPGÖTVUN ÁRSINS: GULLNI LUNDINN / DISCOVERY OF THE YEAR: THE GOLDEN PUFFIN
DÓMNEFND / JURY:
Dagmar Forelle
Forstöðumaður fjáröflunarsviðs kvikmyndahátíðarinnar í Berlín frá árinu 2000. Hún hefur haft mikil áhrif á samstarf hátíðarinnar við atvinnulífið.
Frederic Boyer
Eftir að hafa verið í valnefnd Director’s Fortnight flokksins í Cannes frá árinu 2003 tók hann við sem dagskrárstjóri þar árin 2010 og ‘11. Listrænn stjórnandi evrópsku kvikmh. í Les Arcs frá 2009 og Tribeca hátíðarinnar í New York frá 2012.
Paola Corvino
Stofnaði sjálfstæða dreifingaraðilann Intramovies fyrir fjörutíu árum. Corvino hefur verið forseti Bandalags ítalskra kvikmyndaútflytjenda frá 2004.
Laufey Guðjónsdóttir
Laufey hefur verið forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands frá árinu 2003.
Agnes Johansen
Kvikmyndaframleiðandi. Meðal verka hennar eru ‘Stormviðri’, ‘Dís’, ‘Mýrin’, ‘Brúðguminn’, ‘Fúsi’ og ‘Ófærð.’
UMHVERFISVERÐLAUN / ENVIRONMENTAL AWARD
Umhverfisverðlaunin eru veitt í sjötta sinn. Þau hlýtur ein mynd úr flokknum Önnur framtíð.
DÓMNEFND / JURY:
Rakel Garðasdóttir
Verkefnastjóri hjá leikhópnum Vesturporti og meðhöfundur bókarinnar ‘Vakandi veröld.’
Gísli Marteinn Baldursson
Fyrrverandi borgarfulltrúi og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV.
Guðrún Helga Jónasdóttir
Starfar í innkaupadeild RÚV.
Hlín Jóhannesdóttir
Framleiðandi
FIPRESCI VERÐLAUNIN
FIPRESCI eru alþjóðleg samtök kvikmyndagagnrýnenda sem starfa í yfir fimmtíu löndum og veita verðlaun á fjölda kvikmyndahátíða um allan heim.
DÓMNEFND / JURY:
José Teodoro
Kanadískur kvikmynda- og bókmenntagagnrýnandi sem skrifar fyrir Cinema Scope, Film Comment o.fl.
Kira Taszman
Þýskur kvikmyndagagnrýnandi sem skrifar fyrir Neues Deutschland, Nürnberger Zeitung, Die Welt o.fl. blöð.
Madelyn Most
Kvikmyndagerðarmaður og fréttamaður sem býr í Bretlandi og Frakklandi, hvaðan hún fjallar um kvikmyndaiðnaðinn og -hátíðir.
BESTA ÍSLENSKA STUTTMYNDIN / BEST ICELANDIC SHORT
DÓMNEFND / JURY:
Reynir Lyngdal
Kvikmyndagerðarmaður
Elísabet Ronaldsdóttir
Klippari
Valdís Óskarsdóttir
Leikstjóri og klippari
GULLNA EGGIÐ
DÓMNEFND / JURY:
Þórunn Erna Clausen
leikkona
Jón Páll Eyjólfsson
leikhússtjóri
María Reyndal
handritshöfundur
Umræðan