Í mars sl. samþykkti stjórn Reykjavíkur Loftbrúar breytingar á áherslum og umfangi sjóðsins. Í stað smærri mánaðarlegra úthlutanna í formi farmiða er úthlutun sjóðsins nú ein á ári þar sem valin eru allt að fimm verkefni úr hópi umsækjenda, sem fá veglegt tveggja milljóna króna gjafabréf sem hægt verður að nota að vild í ferðir og aukafarangur með Icelandair.
Með þeim breytingum sem nú hafa verið gerðar á sjóðnum er styrkur frá Reykjavík Loftbrú hrein búbót fyrir tónlistarfólk sem getur nýtt gjafabréfið til að kaupa flug og aukafarangur með Icelandair en breytingarnar á Reykjavík Loftbrú eru gerðar til að geta stutt enn betur við bakið á tónlistarfólki sem er í markvissri útrás með sína tónlist. Markmiðið með Reykjavík Loftbrú er einmitt að styðja við bakið á íslensku tónlistarfólki sem vill hasla sér völl á erlendri grundu og kynna um leið Reykjavík sem tónlistar- og menningarborg og spennandi viðkomustað ferðamanna.
MAMMÚT, AdHd, Anna Thorvaldsdottir, Reykjavíkurdætur og Hugar hlutu veglega 2ja milljóna króna styrki hver til að kaupa flug og farangur með Icelandair.
Aðilar að Reykjavík Loftbrú eru Icelandair, Reykjavíkurborg, FÍH (Félag íslenskra hljómlistarmanna), FHF (Félag hljómplötuframleiðenda) og STEF (Samtök tónskálda og eigenda flutningsréttar).
Umræðan