Þjóðlagatónlistarhátíðin Reykjavík Folk Festival fór afar vel af stað í gærkvöldi í Gym og Tónik salnum á Kex Hostel við Skúlagötu. Dagskrá hátíðarinnar er ætlað að blanda saman þjóðlagatónlistarmönnum og -hljómsveitum á ólíkum aldri og frá ólíkum áttum innan þjóðlagatónlistarheimsins. Hátíðin fer fram í notalegum húsakynnum Kex Hostels og verður ekkert til sparað við að skapa notalega og einlæga stemmningu og ógleymanlega tónlistarveislu fyrir alla unnendur þjóðlagatónlistar.
Þeir listamenn sem koma fram á hátíðinni í ár eru; Elín Ey, Valdimar Guðmundsson & Örn Eldjárn, Högni Egilsson, Ellen Krisjánsdóttir & Eyþór Gunnarsson, Ragnheiður Gröndal, Bangoura Band, Ingunn Huld og Skuggamyndir frá Býzans og sóley.
Dagskráin í kvöld er einkar glæsileg en fram koma Ellen Kristjánsdóttir & Eyþór Gunnarsson, Ragga Gröndal og Bangoura Band. Á morgun laugardag koma fram: Ingunn Huld, Skuggamyndir frá Býzans og Högni Egilsson.
Miðaverð á hátíðina er 3.000 kr fyrir stök kvöld en 8.000 kr fyrir passa sem gildir á öll 3 kvöldin. Dagskrá hátíðarinnar hefst kl. 20 öll kvöld og lýkur kl. 23:00. Forsala miða er hér.
Albumm lét sjá sig í fyrra og hægt er að skoða ljósmyndir frá hátíðinni fyrir ári inn á linkunum hér fyrir neðan:
Umræðan