Drykkjarframleiðandinn Red Bull gerir miklu meira en bara orkudrykki því Red Bull er eitt stærsta nafnið þegar kemur að Extreme Sports. Myndböndin frá fyrirtækinu hafa slegið í gegn en eitt slíkt var tekið upp hér á landi fyrir skömmu. Það voru BMX kapparnir Bruno Hoffmann og Colin Varanyak sem komu til landsins gagngert til að hjóla og taka upp myndbandið umrædda.
„Ég var ekki viss við hverju var að búast, vissi ekkert um Ísland og hvort veðrið væri alltaf ómögulegt“ – Colin Varanyak
Kapparnir höfðu aldrei komið til Íslands áður og vissu ekki hvort það væri einhver BMX sena hér á landi.
„Við höfðum samband við Anton Arnarson en hann er einn af bestu BMX mönnum landsins og hann lofaði okkur að það væri vel hægt að hjóla í Reykjavík þannig við skelltum okkur á þetta“ – Bruno Hoffmann
Einnig koma fram í myndinni Íslensku BMX kapparnir Anton Arnarson og Bjarki Harðarson.
Klikkið hér til að sjá myndbandið.
Umræðan