Red Bull Music Academy snýr aftur á Sónar Reykjavík, þriðja árið í röð og tilkynnir hér með hvaða framúrskarandi tónlistarmenn/konur, innlend sem erlend, hafa orðið fyrir valinu til að koma fram í Kaldalóni Hörpu á tónlistarhátíðinni Sónar Reykjavík sem fer fram 16. 17. og 18. febrúar n.k.
Meðal þeirra sem staðfest hefur verið að komi fram eru hip-hop goðsögnin Oddisee og teknó-og hávaðatröllið Vatican Shadow ásamt þeim Pan Daijing, Marie Davidson og Johan Caroe sem eiga það öll sameiginlegt að hafa útskrifast nýlega úr Red Bull Music Academy í Montreal, Kanada. Mörgum er það kannski minnisstætt að Auðunn Lúthersson (AUÐUR) útskrifaðist, fyrstur Íslendinga, einnig með þessum sama árgangi úr akademíunni eftir að hafa fengið inngöngu, meðal annars, á grundvelli frábærar frammistöðu á Sónar Reykjavík 2016.
Íslenska tónlistarsenan gefur ekkert eftir og meðal meðlima úr henni sem koma fram á RBMA sviðinu í ár má nefna Örvar Smárason úr múm og FM Belfast sem mun frumflytja nýtt sólóverkefni sitt, HRNNR og Smjörvi, SiGRÚN og Cyber.
Red Bull Music Academy lineup á Sónar Reykjavík 2017:
AAIIEENN (IS), Cyber (IS), h.dór (IS), HRNNR x Smjörvi (IS), Johan Carøe (DK), JOHN GRVY (ES), Marie Davidson (CA), Oddisee (US), Pan Daijing (CN), Sapphire Slows (JP), SiGRÚN (IS), Vatican Shadow (US), Wesen (IS), Øfjord (IS), Örvar Smárason (IS).
Áður hefur verið tilkynnt um fjölda tónlistarmanna og kvenna sem koma fram á Sónar Reykjavík 2017 og meðal þeirra eru Fatboy Slim, Moderat, De La Soul, Ben Klock, Helena Hauff, Gus Gus, Sleigh Bells, Emmsjé Gauti, Aron Can, Glowie og Samaris ásamt mörgum öðrum. Miðasala er á midi.is
http://www.redbullmusicacademy.com
Hægt er að nálgast miða á Sónar Reykjavík hér.
Umræðan