Á föstudaginn sem leið héldu Reykjavíkurdætur rappkonukvöld á skemmtistaðnum Húrra. Það er mikil gróska í Íslensku rappi um þessar mundir og það er greinilegt að það loðir ekki bara við karlmenn! Stappað var út úr dyrum á Húrra og fjöldinn allur af rappkonum voru þar saman komnar og stemmingin var vægast sagt frábær.
Ég held að það sé óhætt að segja að aldrei hafa verið jafn margar konur í rappi á Íslandi og því ber að fagna!
Andri Sigurður Haraldsson mætti á svæðið og tók hann þessar skemmtilegu ljósmyndir fyrir Albumm.is
Umræðan