Framkvæmdastjórn Íslensku tónlistarverðlaunanna vill vekja athygli á því að 1. desember er opnað fyrir umsóknir til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2017.
Öllu íslensku tónlistarfólki, öllum tónskáldum, útgefendum og öðrum hagsmunaaðilum sem gefið hafa út nýja íslenska tónlist, haldið tónleika eða sent frá sér ný lög, tónverk eða myndbönd er frjálst að senda inn tilnefningar í viðeigandi flokka sem eru þrír: 1. Klassík og samtímatónlist. 2. Djass og blús. 3. Popp, rokk, rapp, raftónlist, kvikmynda- og leikhústónlist, sem og önnur tónlist.
Í fyrra var verðlaunum fjölgað þegar bætt var við rappi, hip hop, raftónlist, kvikmynda- og leikhústónlist og gaf það góða raun. Þessir verðlaunaflokkar, ásamt þjóðlagatónlist, eru þó háðir þeim afmörkunum að nægilega margar frambærilegar tilnefningar berist í þessa tilteknu flokka. Opið verður fyrir tilnefningar til 15. janúar 2018. Til að skrá verk skal fylgja þessum hlekk en hér er um að ræða innsendingarsíðu Íslensku tónlistarverðlaunanna: Istonumsokn.firebaseapp.com
Veitt eru verðlaun fyrir tímabilið 1. Janúar til 31. Desember 2017. Skilafrestur á innsendingum rennur úr á miðnætti 15. Janúar 2018. Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna verða kynntar um miðjan febrúar 2018. Verðlaunahátíðin fer fram í Hörpu þann 14.mars 2018. Verðlaun verða veitt í alls 30 flokkum.
Ný og endurbætt heimasíða Íslensku tónlistarverðlaunanna opnar einnig 1. desember, www.iston.is. Þar má finna allar helstu upplýsingar um verðlaunin, reglur, samstarfsaðila, sögu hátíðarinnar og lista yfir verðlaunahafa fyrri ára og þá sem hlotið hafa tilnefningar. Það eru þeir Þormóður Dagson, Kristinn Evertsson og Steve Anatai sem eiga veg og vanda að glæsilegu útliti og hönnun hennar.
Senda má inn tilnefningar vegna verka sem gefin eru út og frumflutt á árinu. Tónlist má skila á rafrænu formi en jafnframt er eindregið mælst til þess að senda inn geisladiska eða plötur ef kostur er á slíku. Tekið verður við eintökum á skrifstofu STEFs sem nú er tímabundið að Ármúla 7.
Í ár verða veitt verðlaun í 30 flokkum að viðbættum Heiðursverðlaunum Íslensku tónlistarverðlaunanna. Reglur og leiðbeiningar Íslensku tónlistarverðlaunanna er að finna á heimsíðu verðlaunanna. Íslensku tónlistarverðlaunin verða veitt í Hörpu miðvikudaginn 14. mars 2018 en tilnefningar verða kynntar um miðjan febrúar. Íslensku tónlistarverðlaunin eru haldin fyrir tilstuðlan hagsmunafélaga tónlistarinnar, STEFs og SFH, undir merkjum Samtóns.
Stjórn Ístón skipa Margrét Eir Hönnudóttir og Jóhann Ágúst Jóhannsson.
Umræðan