Barf Bags er snjóbretta crew sem hefur verið að gera það ansi gott að undanförnu en Í Barf Bags eru Halldór, Gunnar, Akon, Sindri, Svabbi, Sölvi, Isak, Árni Ingi, Matti o.fl.
Barf Bags er hópur af gaurum sem eiga það allir sameiginlegt að renna sér á snjóbretti eins og enginn er morgundagurinn en þeir taka þessu ekki of alvarlega og einblína á það eitt að hafa gaman af lífinu og gera það sem þeir vilja!
Þessir snillingar voru að henda í glænýtt myndband en það er tekið í Klappen í svíþjóð og var einungis tekið upp á einum degi.
Umræðan