Nicolas Kunysz er listamaður ættaður frá Belgíu en er búsettur á Íslandi. Nicolas og Frímann Ísleifur Frímannsson reka plötufyrirtækið Lady Boy Records, kappinn er einnig með kvöldin Lowercase nights og er meðlimur í hljómsveitinni Pyrodulia ásamt Frímanni Frímannssyni.
Nicolas Kunysz var að senda frá sér sínu fyrstu raunverulegu útgáfu Music For Islands. Útgáfan er í formi tíu tommu vínyl plötu og fæst hún í takmörkuðu upplagi.
Tónlist Nicolas má lýsa sem Ambient, Drón tónlist en hann blandar saman ólíkum hljóðum sem hann hefur annaðhvort tekið upp sjálfur víðsvegar um landið eða frá hinum ýmsu rafgræjum.
LINKAR:
https://www.facebook.com/ladyboyrecords
https://ladyboyrecords.bandcamp.com
https://www.facebook.com/lowercasenights
Umræðan