New Neighborhoods Festival tengir saman Íslenska og Pólska listamenn og fer fram í fyrsta skiptið í Reykjavík nú um næstkomandi helgi. Um þrem vikum seinna eða 10. September verður hátíðin haldin í Warsaw í Póllandi en það er pólska umboðskrifstofan Chimes Agency sem sér um herlegheitin.
Pan Thorarensen er tengiliður Íslands en hann er enginn nýgræðingur þegar kemur að tónlist! kappinn kemur fram á hátíðinni undir nafninu Beatmakin Troopa en hann er einnig meðlimur í hljómsveitinni Stereo Hypnosis og er hjartað á bakvið Extreme Chill svo fátt sé nefnt.
Dagskráin er alls ekki af verri endanum en fram koma:
14:30-15:10 – Beatmakin Troopa
15:30-16:10 – Hatti Vatti
16:40-17:10 – Úlfur Úlfur
17:40-18:10 – The Stubs
18:40-19:10 – Tonik Ensemble
19:50-20.30 – Baasch
New Neighborhoods Festival fer fram á Kex hostel á Menningarnótt og frítt er inn á hátíðina!
Umræðan