Tónlistarkonan Anna Tara var að senda frá glænýtt myndband við lagið „Pussypics.” Myndbandið skartar píku í allskonar stellingum en Anna segir að það sé til mikið meira af tippamyndum í heiminum en píkumyndum. Önnu fannst vanta vettvang fyrir píkumyndir á forsendum kvenna en ekki bara á forsendum karla eins og til dæmis úr klámi.
Anna er ekki einsömul í laginu en með henni syngur tónlistarkonan Sólveig Pálsdóttir og BLKPRTY sá um útsetnigu lagsins!
Um hvað er lagið og er það búið að vera lengi í vinnslu?
Lagið er fyrst og fremst um píkur en það er búið að vera í vinnslu í um það bil eitt ár. Textinn byrjar á ,,I wish my pussy was my face to make the world a better place…” svo heldur það áfram í þeirri súrrealísku hugmynd um hvað það væri gott að borða og hvað hún myndi lykta vel og svo framvegis. Síðan er þetta líka eins konar hvatning til kvenna að finnast eins sjálfsagt og hafa sömu þörf fyrir að taka myndir af píkunum sínum og karlar virðast hafa til að taka „dickpick.“ Ég held að mitt eigið viðhorf hafi breyst eftir gerð myndbandsins, mér fannst píkur svo sem aldrei ljótar en mér finnst þær einstaklega fallegar núna og ég vil leita leiða til að öllum konum finnist þær jafn fallegar og mér.
Hvaðan sækir þú innblástur fyrir þína listsköpun?
Það er mismunandi, með sum lög þá ligg ég mjög lengi yfir þeim og þá er ég eiginlega sem næst sjálfri mér og þar held ég að ég geti verið frumlegust, það er fyrir sem minnstu áhrifum utan frá.
Myndbandið er hlaðið píkum, hvernig kom það til og hvernig kom upp sú hugmynd?
Já myndbandið er ein píka nánast allan tímann en það lá beint við að hafa píku í myndbandinu þar sem að viðlagið er ,,can´t stop sending those pussypics.” Ég var mjög heppin að finna eitt hugrakkt módel í verkefnið sem vill að vísu vera nafnlaus. Það kom mér hins vegar frekar mikið á óvart hversu mikið fólk virðist hneykslað á því að sjá myndband af píku, alveg magnað þar sem önnur hvor manneskja er með hana, kannski er það túrblóðið ég veit það ekki alveg. Það væri óskandi að allir sem hefðu þörf til að gagnrýna mig beindu gagnrýninni inná við. Hvað er það við píku sem viðkomandi „höndlar” ekki í stað þess að æsa sig við mig.
Var ekkert mál að gera svona myndband og er eitthvað meira í þessum dúr væntanlegt frá þér?
Ég hef ekki hugmynd um hvað kemur næst, held ég hafi þörf fyrir minna átakanleg verkefni en þetta inná milli. En jú auðvitað mjög líklegt að ég geri eitthvað í svipuðum dúr aftur.
Hægt er að sjá myndbandið hér.
Umræðan