Hljómsveitin Milkywhale sendi á dögunum frá sér glæsilegt tónlistarmyndband við lagið „Goodbye.“ Sveitina skipa Melkorka Sigríður Magnúsdóttir og Árni Rúnar Hlöðversson en saman leggja þau áherslur á fanta góða popptónlist og magnaða sviðsframkomu.
Ef þú ferð á tónleika með Milkywhale máttu búast við að sjá og upplifa Ást, trampólín og hvít dýr! Alls ekki slæmt það.
Myndbandið er framleitt og leikstýrt af Magnúsi Leyfssini en það er stórleikarinn Hannes Óli Ágústsson sem fer með aðalhlutverkið og gerir hann það listarlega vel!
Fylgist nánar með Milkywhale hér:
Umræðan