Þriðjudaginn 11. apríl næstkomandi sendir tónlistarmaðurinn Marteinn Sindri frá sér sína fyrstu smáskífu sem nefnist Spring Comes Late Sometimes. Smáskífan verður fáanleg á öllum helstu streymisveitum á borð við Spotify, YouTube og iTunes svo eitthvað sé nefnt. Myndbandið við lagið gerir listakonan Katrín Helena Jónsdóttir.
„Lagasmíðar Marteins eru lágstemndar og seiðandi, hann leitar m.a. í rætur þjóðlaga, sálmasöngs og þess sem Bretar kalla folk músík. Það má greina áhrif frá breska tónlistarmanninum Nick Drake sem fór sínar eigin leiðir í tónlist, en einnig heyrast áhrif frá bandarískum söngvaskáldum frá ýmsum tímum. Marteinn Sindri hefur persónulega rödd sem textasmiður, semur jöfnum höndum á ensku og íslensku og leitar víða fanga. Tónsmíðar hans eru einlægar og hann nýtur liðsinnis úrvals fólks við tónflutninginn.“ – Jónatan Garðarson
Á síðustu misserum hefur Marteinn Sindri verið að hasla sér völl sem lagasmiður og textahöfundur en hann hóf að koma fram með eigið efni fyrir hálfu öðru ári síðan og hefur síðan þá komið fram á ýmsum tónleikum og tónlistarhátíðum á Íslandi og í Frakklandi.
Í tilefni útgáfunnar á fyrstu smáskífu sinni, Spring Comes Late Sometimes, heldur Marteinn Sindri tónleika í Mengi, Óðinsgötu, miðvikudaginn 12. apríl ásamt Óttari Sæmundsen og Kristófer Rodriguez Svönusyni klukkan 20.00. Þar mun Katrín Helena einnig sýna frekari afrakstur samstarfs þeirra Marteins Sindra, en þess má geta að þau eru systkini. Aðgangseyrir er 2.500 kr.
Umræðan