Í dag er 29. febrúar og því ber að fagna. Af hverju??? Jú, af því að sá dagur kemur einungis upp á fjögurra ára fresti og þegar svo ber við þá koma börn hlaupársins saman og bresta í söng og detta í dans. Í tilefni dagsins ætlar Magnús Leifur að gefa ykkur öllum lagið „Pikaia“ með þá von í brjósti að við getum öll komið saman, sungið og haft gaman.
Pikaia var formóðir okkar allra og vann sér það helst til frægðar að hafa verið fyrsta dýrið sem gekk á land úr sjó og er því uppspretta alls þess sem gengur, flýgur, étur, hatar og elskar í dag.
Gjörið svo vel að ganga í bæinn og tryggja ykkur stafræna útgáfu af Pikaia hér:
Umræðan