Tónlistarmaðurinn Stefán Elí gefur frá sér sitt fyrsta lag á árinu en það ber heitið „Lost Myself” og er af væntanlegri plötu kappans sem kemur út núna í mars.
„Lost Myself fjallar um hvernig maður getur átt það til að týna sjálfum sér þegar maður einblínir of mikið á eitthvað sérstakt.” – Stefán Elí
Lagið er fáanlegt á helstu streymisveitum, svo sem Spotify og Apple Music.
Stefán er að vinna í tónlistarmyndbandi við annað lag og má reikna með því eftir nokkrar vikur. Stefán Elí samdi bæði lag og texta ásamt því að sjá um allann hljóðfæraleik og upptökur. Haukur Pálmason hljóðblandaði og masteraði lagið.
Umræðan