Nákvæmlega þremur árum eftir útgáfu síðustu sólóplötu, snýr JOHN GRANT aftur með nýja plötu, Love Is Magic en útgáfudagurinn er 12. Október nk og er fyrsta lag í spilun titillag plötunnar.
Þessi fjórað sólóplata er sú rafskotnasta sem John hefur gert en mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan hin frábæra Queen Of Denmark leit dagsins ljós árið 2010, en það var fyrsta sólóplata Grant. Hann hefur sífellt verið að færast nær hinum rafdrifna hljóðheimi sem svífur yfir vötnum á nýju plötunni og má því segja á einhvern hátt að hér sé um rökrétt framhald að ræða.
Saga John Grant er vægast sagt ævintýraleg: Þegar hljómsveit hans The Czars lagði upp laupana tók hann sér hlé frá tónlist í fimm ár, en þegar hann tók til starfa á ný naut hann strax mikillar velgengni sem sólólistamaður. Plötur hans hafa ratað á vinsældalista, hann var tilnefndur til BRIT verðlauna sem bersti karlkyns sólólistamaðurinn ásamt Eminem og Justin Timberlake. Sinead O’Connor og Tracey Thorn hafa sungið á plötum John, auk þess sem hann hefur komið fram með stórstjörnum á borð við Alison Goldfrapp og Kylie Minogue. Svona mætti lengi telja, en nú er tími Love Is Magic.
„Love Is Magic kemst næst þeim hljómi sem ég hef ávalt verið að leita eftir á plötum mínum, en kannski ekki haft þekkinguna til að nálgast“ segir John, en John naut einnig aðstoðar Paul Alexander úr hljómsveitinni Midlake við gerð plötunnar. „Paul nam tónlistarfræði við við UNT háskólan í Denton í Texas, með áherslu á Jazz og ég vissi að hann er fær um að gera frábærar raddanir, svo ég sleppti honum lausum í bakröddunum“ segir John. „Hann kemur ávalt með áhugaverða nálgun á viðfangsefnið, frekar en þá augljósu, og hefur auk þess spilað bestu bassalínur sem ég hef heyrt.“
Upptökustjórn Love Is Magic var í höndum Benge (Ben Edwards) hljóðgerflasérfræðings og safnara, meðlims raftríósins Wrangler, en Benge og John unni saman fyrr á árinu undir nafninu Creep Show, á plötunni Mr. Dynamite.
Love Is Magic kemur út 12. Október hjá Bella Union og hjá Alda Music á Íslandi.
Umræðan