Steve Sampling blés til útgáfutónleika á Bravó á þriðjudagskvöldið sem leið. Herra Sampling gaf út plötuna Malarkey en það er Möller Records sem gefur plötuna út. Þetta er fimmta breiðskífan sem kappinn sendir frá sér og það má með sannindum segja að hann er enginn nígræðingur í bransanum.
Það myndaðist kósý stemming á Bravó, margt var um manninn og ljúfir tónar fengu að þjóta um eyru viðstaddra. Auk Steve Sampling komu fram Futuregrapher, Skurken, Dj Dorrit og Hazar, alls ekki amalegt það!
Vel heppnað kvöld í alla staði og frábær plata frá Steve Sampling!
The Show Shutter mætti á svæðið fyrir hönd Albumm.is og tók hann þessar frábæru ljósmyndir.
https://www.facebook.com/stevesampling?fref=ts
Umræðan