Hljómsveitin Ensími voru að senda frá sér plötuna Herðubreið. Í tilefni þess blésu kapparnir til útgáfutónleika í Gamla Bíó á laugardaginn sem leið.
Ensími er ein ástsælasta rokk hljómsveit okkar Íslendinga og það mátti svo sannarlega sjá á tónleikunum, magnað fjör og Ensími alveg hrikalega þéttir.
Herðubreið er frábær plata og er skyldueign fyrir alla!
Ensími kom í viðtal hjá Albumm fyrir stuttu og hægt er að lesa viðtalið hér.
The Show Shutter kíkti á tónleikana og tók hann þessar frábæru ljósmyndir fyrir Albumm.is
Umræðan