Hljómsveitirnar Vök og Young Karin héldu svo kallaða Húrraskeldu tónleika á skemmtistaðnum Húrra á miðvikudagskvöldið við frábærar undirtektir. Vök og Young Karin eru á leið til Danmerkur til að spila á Hróarskeldu (alls ekki amalegt það) og var þetta því nett upphitun fyrir það.
Stappað var út úr dyrum á Húrra og myndaðist þægileg og mjög góð stemming.
Albumm.is óskar báðum sveitunum góðrar ferðar!
Snillingurinn The Show Shutter mætti á húrra með nýhlaðna myndavél að vopni.
http://www.theshowshutter.com/
Umræðan