Síðastliðinn föstudag blésu hljómsveitirnar VAR, Máni Orrason og Agent Fresco til tónleika á skemmtistaðnum Húrra.
VAR er tildurlega ný hljómsveit en þau hafa sent frá sér lagið Varmá, frábært lag þar á ferð og það verður forvitnilegt að fylgjast með VAR!
Máni Orrason hefur verið nokkuð áberandi að undanförnu enda ekki skrítið þar sem platan hanns Repeating Patterns hefur fengið frábærar viðtökur og lög eins og Miracle Due og Fed All My Days hafa hljómað óspart á öldum ljósvakans.
https://www.youtube.com/watch?v=hJLS9kAq-7o
Agent Fresco hefur verið ein vinsælasta hljómsveit okkar Íslendinga í þónokkurn tíma og hafa kapparnir verið mjög duglegir að undanförnu. Agent Fresco eru að senda frá sér nýja plötu sem ber nafnið DESTRIER en það er hægt að kaupa hana í forsölu hér: http://www.tonlist.is/Music/Album/1437695/agent_fresco/destrier/
Tónleikarnir heppnuðust frábærlega og pakkað var út úr dyrum enda mjög þéttar sveitir þarna á ferð.
Hinn eini sanni The Show Shutter kíkti á tónleikana fyrir hönd Albumm.is og að sjálfsögðu var hann vopnaður myndavélinni!
Umræðan