Tonik Ensemble fagnaði útgáfu breiðskífunnar “Snapshots” á skemmtistaðnum Húrra í gærkvöld en platan kom út fyrr á árinu á hollenska útgáfufyrirtækinu Atomnation.
Einnig kom fram hljómsveitin Asonat sem er skipuð þeim Jónasi Þór Guðmundssyni, Fannari Ásgrímssyni og Olenu Simon. Þau hafa sent frá sér tvær breiðskífur á bandaríska útgáfufyrirtækinu n5md, Love in Times of Repetition (2012) og Connection (2014) ásamt því hafa þau komið fram víðs vegar í Evrópu.
Andri Sigurður Haraldsson kíkti á tónleikana og tók hann þessar frábæru ljósmyndir fyrir Albumm.is
Umræðan