Hljómsveitin Skálmöld gerir allt vitlaust hvar sem hún kemur fram og hún gerði það svo sannarlega á Gauknum síðastliðið laugardagskvöld.
Það voru tvennir tónleikar þennan dag þeir fyrri byrjuðu kl: 16.00 og voru fyrir allan aldurshóp. Seinni tónleikarnir byrjuðu kl: 22.00 og voru fyrir tuttugu ára og eldri.
Það var stappað út úr dyrum og það er óhætt að segja að Skálmöld kann svo sannarlega að hrista upp í mannskapnum og já gera allt vitlaust enda rosalega þétt og gott band þarna á ferð!
The Show Shutter mætti á Gaukinn um kvöldið og tók hann þessar frábæru ljósmyndir fyrir hönd Albumm.is
Umræðan