Hljómsveitin Kaleo hefur dvalið seinustu mánuðina í USA og hafa því ekkert spilað á Íslandi í langan tíma. Kaleo komu til landsins í síðustu viku til að taka upp myndband en kapparnir ákváðu að skella í eina tónleika í leiðinni. Það var stappað út úr dyrum í Gamla Bíó á laugardaginn sem leið og greinilegt að landinn var farinn að sakna þessarar frábæru hljómsveitar. Einnig kom hljómsveitin VAR fram og kom sú hljómsveit vægast sagt skemmtilega á óvart! Frábært band sem verður gaman að fylgjast með.
The Show Shutter var á tónleikunum og tók hann þessar ljósmyndir fyrir Albumm.is
http://www.theshowshutter.com/
Umræðan