Það var sannkölluð rappveisla á skemmtistaðnum Húrra síðastliðið laugardagskvöld þegar Emmsjé Gauti, Úlfur Úlfur og GKR blésu til tónleika. Úlfur Úlfur og Emmsjé Gauti eru funheitir þessa dagana og það fór sko ekki á milli mála þetta kvöld! Stemmingin var rafmögnuð og allt ætlaði um koll að keyra þegar smellir eins og Strákarnir og Brennum Allt fengu að óma um staðinn.
Sviti, gleði og góð tónlist var í fyrirrúmi og því ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið gargandi snilld!
Hafsteinn Viðar Ársælsson mætti á Húrra og tók hann þessar frábæru ljósmyndir fyrir Albumm.is
Tengdar Færslur:
https://albumm.is/emmsje-gauti/
https://albumm.is/gisli-palmi-bent-emmsje-gauti-og-logi-pedro-a-hurra/
https://albumm.is/ulfur-ulfur-senda-fra-ser-nytt-lag-og-myndband/
Umræðan