Tíu ára afmælisveisla Systematic Recordings fór fram á Paloma á laugardaginn sem var að líða en það var í boði Sunnudagsklúbbsins sem hefur verið að gera það gott að undanförnu. Það voru Marc Romboy, Namito, Dj Frímann og Bensol sem trylltu lýðinn á efri hæðinni en á þeirri neðri var það Intro Beats og Formaðurinn.
Stappað var út úr dyrum og stemningin var vægast sagt rafmögnuð, svo rafmögnuð reyndar að það þurfti að taka rafmagnið af svo Marc Romboy mundi hætta að spila! Brjálað stuð.
Algjörlega vel heppnað í alla staði og allir skemmtu sér vægast sagt konunglega.
Sunnudagsklúbburinn er að gera góða hluti!
The Show Shutter kíkti við og smellti af nokkrum ljósmyndum fyrir Albumm.is
Umræðan