Skötuveislan 2015 fór fram í dag á Ingólfstorgi en það er hjólabrettakeppni sem er haldin á vegum félagsmiðstöðvarinnar Frosta. Keppendurnir eru á aldrinum 12 – 16 ára og er þetta í fyrsta skipti sem þetta er haldið.
Torgið var stappað af góðu fólki, tónlistin dundi í eyrunum og margir gæddu sér á pylsum og gosi og ekki skemmir fyrir að sólin lét loksins sjá sig og skellti meira að segja smá hita á liðið!
Skötuveislan heppnaðist vægast sagt frábærlega og eiga starfsmenn Frosta og allir þeir sem komu að þessu mikið lof skilið.
Það voru flottir vinningar í boði frá Mohawks, Brim og Prikinu og ekki voru dómararnir af verri endanum en það voru Addi Intro Beats, Emmsjé Gauti og Reynaldo Cruz sem sáu um stigagjöfina.
Okkur hlakkar til eftir ár því þá verður Skötuveislan 2016.
Umræðan